Máni ÍS 87

5183. Máni ÍS 87 ex Máni SU 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Strandveiðibáturinn Máni ÍS 87 kemur hér úr róðri í byrjun mánaðarins en hann er gerður út frá Suðureyri við Súgandafjörð.

Máni hét upphaflega Björgin GK 69 og var báturinn smíðaður hjá Bátasmíðastöð Jóns Ö. Jónassonar í Reykjavík árið 1975.

Báturinn var í upphafi afturbyggður en er nú frambyggður eins og sjá má.

Máni, sem er rúmar fjórar brl. að stærð,var keyptur til Suðureyrar árið 2019 en hafði frá árinu 2011 borið nafnið Máni SU 55 með heimahöfn á Breiðdalsvík.

Á vefnum aba.is segi að báturinn hafi verið smíðaður fyrir Guðmundur Ólafsson í Vogum á Vatnsleysuströnd sem átti bátinn í tuttugu og eitt ár.

Árið 1996 fékk báturinn nafnið Óskin KE 69 og átti svo eftir að bera nöfnin Óli II SH 350, Hrefna HF 777, Hrefna HU, Hótel Bjarg SU og Martha SU 89 áður en hann fékk Mánanafnið árið 2011.

En eins og áður segir hefur Máni átt heimahöfn á Suðureyri frá árinu 2019.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd