Amadea á Skjálfanda

IMO 8913162. Amadea ex Asuka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Skemmtiferðaskipið Amadea kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði.

Skipið var smíðað í Japan árið 1991 og hét áður Asuka en hefur borið nafnið Amadea frá árinu 2006.

Amadea, sem er með heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum, er 29,008 GT að stærð. Lengd skipsins er 198,2 metrar og breidd þess 24,7 metrar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd