Ýmir HF 343

1880. Ýmir HF 343. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Frystitogarinn Ýmir HF 343 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði en Stálskip hf. lét smíða hann hjá SIMEK, Sigbjörn Iversen A/S í Flekkefjord í Noregi. Togarinn kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Hafnarfirði þann 9. maí árið 1988. Ýmir HF 343 var seldur til Rússlands snemma árs 2003. Með … Halda áfram að lesa Ýmir HF 343 →

Haraldur Kristjánsson HF 2

1868. Haraldur Kristjánsson HF 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Frystitogarinn Haraldur Kristjánsson HF 2 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði sem var hans heimahöfn en togarinn var smíðaður í Noregi fyrir Sjólastöðina. Smíðin fór fram hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi og kom skipið til heimahafnar í Hafnarfirði 23. mars árið 1988. Haraldur Kristjánsson HF … Halda áfram að lesa Haraldur Kristjánsson HF 2 →

Sjóli HF 1

1833. Sjóli HF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Frystitogarinn Sjóli HF 1 er hér við bryggju í Hafnarfirði um árið en hann var gerður út af Sjólastöðinni þar í bæ. Sjóli var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi og kom skipið í fyrsta skipti til heimahafnar í Hafnarfirði 21. september árið 1987. … Halda áfram að lesa Sjóli HF 1 →

Hringur seldur til Nýfundnalands

Hringur SH 153 ex Marina Polaris. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hringur SH 153 frá Grundarfirði hefur verið seldur til Nýfundnalands og er kominn þangað. Hringur SH 153 var keyptur til landsins frá frá Fraserburgh í Skotlandi og kom hann til heimahafnar í Grundarfirði á Gamlársdag 2005. Hringur SH 153, sem var í eigu Guðmundar Runólfssonar hf, … Halda áfram að lesa Hringur seldur til Nýfundnalands →

Gullver heitir nú Elizabeth H

IMO 8211851. Elizabeth H ex Gullver NS 12. Ljósmynd Magnús Jónsson 2026. Síldarvinnslan hefur selt skuttogarann Gullver NS 12 til Gambíu þar sem hann fékk nafnið Elizabeth H með heimahöfn í Banjul. Gullver NS 12 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1983 fyrir Gullberg h/f á Seyðisfirði. Lesa meira um skipið. Með því að … Halda áfram að lesa Gullver heitir nú Elizabeth H →

Ljósafell SU 70

2401. Ljósafell SU 70 ex Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Óðinn Magnason 2026. Óðinn Magnason tók þessa mynd á dögunum þegar nýr togari Loðnuvinnslunnar hf., Ljósafell SU 70, kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði í fyrsta skipti. Ljósafellið, sem leysir af hólmi Japanstogarann Ljósafell, hét áður Þórunn Sveinsdóttir VE 401 og var smíðað í Karstensens Skibsværft … Halda áfram að lesa Ljósafell SU 70 →

Rauðinúpur við bryggju á Raufarhöfn

2262. Rauðinúpur ÞH 160 ex Júlíus Havsteen ÞH 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rauðinúpur ÞH 160 liggur hér við bryggju á Raufarhöfn um árið og það áður en hann fór í breytingarnar í Póllandi árið 1999. Rauðinúpur ÞH 160 hét áður Júlíus Havsteen ÞH 1 en upphaflega Quaasiut II. Hann var smíðaður árið 1987 fyrir Grænlendinga og fór smíðin … Halda áfram að lesa Rauðinúpur við bryggju á Raufarhöfn →

Bjartur NK 121

1278. Bjartur NK 121. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Bjartur NK 121 frá Neskaupstað liggur hér við bryggju á Húsavík um árið en hann var einn Japanstogaranna svokölluðu. Spurning hvort hann hafi verið á ralli. Hann var afhentur Síldarvinnslunni í janúarmánuði árið 1973. Á heimasíðu Síldavinnslunnar má lesa frétt um Bjart NK sem var skrifuð árið … Halda áfram að lesa Bjartur NK 121 →