Hringur seldur til Nýfundnalands

Hringur SH 153 ex Marina Polaris. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Hringur SH 153 frá Grundarfirði hefur verið seldur til Nýfundnalands og er kominn þangað.

Hringur SH 153 var keyptur til landsins frá frá Fraserburgh í Skotlandi og kom hann til heimahafnar í Grundarfirði á Gamlársdag 2005.

Hringur SH 153, sem var í eigu Guðmundar Runólfssonar hf, var smíðaður í Skotlandi árið 1997. Hann er 29 metra langur og 9,5 metra breiður og mælist 272 brl./481 BT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd