Bjartur NK 121

1278. Bjartur NK 121. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Skuttogarinn Bjartur NK 121 frá Neskaupstað liggur hér við bryggju á Húsavík um árið en hann var einn Japanstogaranna svokölluðu. Spurning hvort hann hafi verið á ralli.

Hann var afhentur Síldarvinnslunni í janúarmánuði árið 1973.

Á heimasíðu Síldavinnslunnar má lesa frétt um Bjart NK sem var skrifuð árið 2016 en þá var hann seldur til Írans.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd