
Rauðinúpur ÞH 160 liggur hér við bryggju á Raufarhöfn um árið og það áður en hann fór í breytingarnar í Póllandi árið 1999.
Rauðinúpur ÞH 160 hét áður Júlíus Havsteen ÞH 1 en upphaflega Quaasiut II. Hann var smíðaður árið 1987 fyrir Grænlendinga og fór smíðin fram í J.K Skibsbyggeri APS í Danmörku.
Hann var keyptur til landsins árið 1995 en kom til heimahafnar á Húsavík í janúar 1996.
Júlíus Havsteen ÞH 1 var seldur Jökli h/f á Raufarhöfn sumarið 1997 og fékk nafnið Rauðinúpur ÞH 160.
Síðar Sólbakur EA 7, Sólbakur RE 207 og því næst Sóley Sigurjóns GK 200 sem er það nafn sem togarinn ber í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution