2550.Sléttbakur EA 304 ex Sevryba 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta frystitogarann Sléttbak EA 304 á siglingu á Eyjafirði um árið en ÚA keypti hann til landsins í marsmánuði árið 2002. Togarinn, sem síðar varð EA 4, hét áður Sevryba 2 og var smíðaður í Orskov Shipyard í Danmörku árið 1998. Ekki varð … Halda áfram að lesa Sléttbakur EA 304
Flokkur: Togarar
Ottó N Þorláksson VE 5 í Hafnarfirði
Ottó N Þorláksson VE 5 ex RE 203. Ljósmynd Magnús Jónsson 2026. Maggi Jóns sendi þessa mynd sem hann tók í gær af Ottó N Þorlákssyni VE 5 í Hafnarfjarðarhöfn. Ísfélag Vestmannaeyja hf. keypti Ottó N Þorláksson RE 203 af HB Granda hf. árið 2017 en togarinn var smíðaður 1981 í Stálvík hf. Garðabæ. Ottó … Halda áfram að lesa Ottó N Þorláksson VE 5 í Hafnarfirði
Bergey VE 44 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær
2964. Bergey VE 44 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Bergey VE 44 kemur hér til hafnar í Grindavík í gærmorgun með fullfermi líkt og systurskipið Vestmannaey VE 54. Þær lönduðu einnig fullfermi í Þorlákshöfn sl. fimmtudag en það hefur verið mokfiskirí hjá þeim við Surtinn undanfarið og stutt að fara. Bergey er … Halda áfram að lesa Bergey VE 44 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær
Vestmannaey VE 54 að fiska vel
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Vestmannaey VE 54 kemur hér til hafnar í Grindavík í gærmorgun með fullfermi en hún landaði einnig fullfermi í Þorlákshöfn sl. fimmtudag. Það hefur verið mokfiskirí hjá þeim við Surtinn undanfarið og stutt að fara. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf. dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 að fiska vel
Hringur SH 535
1473. Hringur SH 535 ex Hrímbakur EA 306. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Grundarfjarðartogarinn Hringur SH 535 er hér við Þvergarðinn á Húsavík um árið en togarinn aflaði hráefnis fyrir FH um tíma. Togarinn hét upphaflega Bjarni Herjólfsson ÁR 200 og var smíðaður í Póllandi árið 1977. Hrímbakur EA 306 var 488 brl. að stærð búinn 2200 hestafla … Halda áfram að lesa Hringur SH 535
Brettingur NS 50
1279. Brettingur NS 50 við bryggju á Vopnafirði. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Japanstogarinn Brettingur NS 50 liggur hér við bryggju í sinni heimahöfn á Vopnafirðir. Myndin sennilega tekið haustið 1982. Haukur Sigtryggur sendi miða: 1279….Brettingur NS 50… TF-TE.IMO: 7302392.MMSI: 251196000. Skipasmíðastöð: Niigata Engineering Ltd. Niigata. Japan. 1973.1974 = Brúttó: 461. U-þilfari: 311. Nettó: 145.Lengd: 47,03. Breidd: … Halda áfram að lesa Brettingur NS 50
Eldeyjar Súla KE 20
1481. Eldeyjar Súla KE 20 ex Dalborg EA 317. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Útgerðarfélagið Eldey hf. keypti togarann Dalborgu EA 317 frá Dalvík árið 1991 og gaf honum nafnið Eldeyjar Súla KE 20. Togarinn var smíðaður í Ancona á Ítalíu árið 1971 en Söltunarfélag Dalvíkur hf. keypti hann til landsins frá Sardiníu árið 1977. Hér má … Halda áfram að lesa Eldeyjar Súla KE 20
Dalborg EA 317
1481. Dalborg EA 317 ex Lucia Garau. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Dalborg EA 317 hét áður Lucia Garau og var smíðaður sem frystitogari hjá í Ancona á Ítalíu árið 1971. Söltunarfélag Dalvíkur hf. keypti togarann frá Sardiníu árið 1977 og gaf honum nafnið Dalborg EA 317. Áður en Dalborg kom til landsins fór togarinn í … Halda áfram að lesa Dalborg EA 317
Þerney á toginu
Þerney RE 1 ex Ilivleq GR-2-21. Ljósmynd Sigmar Ingólfsson 2026. Sigmar Ingólfsson skipverji á Baldvin Njálssyni GK 400 tók þessa mynd í vikunni sem sýnir frystitogara Brims hf., Þerney RE 1, á toginum. Þerney hét áður Ilivileq GR 2-201 og var gerður út af Arctic Prime Fisheries á Grænlandi. Togarinn var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon … Halda áfram að lesa Þerney á toginu
Steinunn SF 10
2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir sl. fimmtudag þegar Steinunn SF 10 kom til löndunar í Þorlákshöfn. Steinunn SF 10 er í hópi sjö systurskipa sem norska skipasmíðastöðin VARD smíðaði fyrir íslenskar útgerðir en Skinney-Þinganes fékk tvö þeirra. Þ.e.a.s og Steinunni og Þinganes. 2966. Steinunn SF 10. Ljósmyndir Jón … Halda áfram að lesa Steinunn SF 10









