2731. Birtingur NK 119 ex Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Á þessum myndum Jóns Steinarsfrá því í gær er Birtingur NK 119 á útleið frá Grindavík í sína fyrstu veiðiferð eftir sumarfrí. Birtingur NK 119 hét áður Þórir SF 77 en Síldarvinnslan keypti hann haustið 2024. 2731. Birtingur NK 119 ex Þórir SF … Halda áfram að lesa Birtingur NK 119 farinn af stað eftir sumarfrí
Flokkur: Togarar
Klakkur VE 103
1472. Klakkur VE 103. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Klakkur VE 103 kom hann nýr til Vestmannaeyja þann 23. mars árið 1977 en eigandi togarans, sem mældist 488 brl. að stærð, var Klakkur hf. í Vestmannaeyjum. Síðar gerði Samtog ofl. hann út frá Eyjum. Klakkur var smíðaður í Gdynia í Póllandi hjá Stocznia im Komuny Paryskiey (nýsmíði … Halda áfram að lesa Klakkur VE 103
Bergey VE 544
1478. Bergey VE 544 ex Lárus Sveinsson SH 126. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skuttogarinn Bergey VE 544 hét upphaflega Lárus Sveinsson SH 126 á íslenskri skipaskrá en hann var keyptur notaður til landsins árið 1978. Hann hét áður President Arthur Brien og var keyptur frá Frakklandi en hann var smíðaður þar í landi árið 1974. Það … Halda áfram að lesa Bergey VE 544
Þrjú systurskip
Þjú systurskip smíðuð í Tyrklandi. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2026. Sigurður Davíðsson tók þessa mynd á Akureyri í dag og sýnir hún þrjú systurskip sem smíðuð voru á sínum tíma í Tyrklandi. Við slippkantinn liggja Björg EA 7 og Kaldbakur EA 1 og dráttarbátarnir Mjölnir og Seifur er að slefa Drangey inn í höfnina. Fjórða systurskipið, … Halda áfram að lesa Þrjú systurskip
Brettingur KE 50
1279. Brettingur KE 50 ex Brettingur RE ex Samphire. Ljósmynd Sigurgeir Harðarson. Skuttogarinn Brettingur KE 50 liggur hér við bryggju í Njarðvík um árið en var einn Japanstogaranna svokölluðu og hét upphaflega Brettingur NS 50. Það var Gotti ehf. sem var útgerðaraðili Brettings KE 50 á árunum 2010-2012. Haukur Sigtryggur sendi miða: 1279….Brettingur NS 50… … Halda áfram að lesa Brettingur KE 50
Sólbergið nýmálað og fínt
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hér liggur frystitogarinn Sólberg ÓF 1 nýskveraður og fínn við slippkantinn á Akureyri um helgina. Togarinn var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og alls 3.720 brúttótonn að stærð. Ísfélagið hf. gerir Sólbergið út í dag … Halda áfram að lesa Sólbergið nýmálað og fínt
Kleifaberg ÓF 2
1360. Kleifaberg ÓF 2 ex Engey RE 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Kleifaberg ÓF 2 lætur hér úr höfn í Reykjavík undir lok síðustu aldar en þá var hann gerður út af Ramma hf. og var með heimahöfn á Ólafsfirði. Kleifaberg RE 70 hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í … Halda áfram að lesa Kleifaberg ÓF 2
Sólborg RE 27
3013. Sólborg RE 27 ex Tasermiut GR 6-395. Ljósmynd Vigfús Markússon. Frystitgogarinn Sólborg RE 27 sem Brim hf. gerir út er hér á toginu en myndina tók Vigfús Markússon. Sólborg hét áður Tasermiut GR 6-395 og var áður í eigu Arctic Prime Fisheries á Grænlandi. Togarinn, sem hét upphaflega Tasermiut, var smíðaður hjá Langsten Slip … Halda áfram að lesa Sólborg RE 27
Ásbjörn RE 50
1509. Ásbjörn RE 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Ásbjörn RE 50 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2005 en hann var smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Flekkefjørd í Noregi. Ásbjörn kom í fyrsta skipti til heimahafnar 28. mars 1978 en þann 22. desember 1977 hafði systurskip hans Ásgeir RE 60 komið til landsins. Ásbjörn … Halda áfram að lesa Ásbjörn RE 50
Sólbergið í flotkvínni á Akureyri
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 er þessa dagana í skveringu í kvínni hjá Slippnum á Akureyri og tók Jón Steinar þessar myndir um sl. helgi. Togarinn var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og … Halda áfram að lesa Sólbergið í flotkvínni á Akureyri









