Margrét GK 33 kemur að landi

2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Línubáturinn Margrét Gk 33 kemur hér að landi í Sandgerði en myndirnar tók Elvar Jósefsson í dag. Eins og áður hefur komið fram á síðunni var báturinn smíðaður fyrir Útgerðarfélag Sandgerðis ehf. sem er í eigu Nesfisks í Garðinum. Báturinn, sem smíðaður er af Víkingbátum ehf,, leysir … Halda áfram að lesa Margrét GK 33 kemur að landi →

Margrét GK 33, nýr línubátur Útgerðarfélags Sandgerðis

2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Margrét GK 33, nýr línubátur Útgerðarfélags Sandgerðis ehf., er hér við bryggju í Hafnarfirði í vikunni. Báturinn, sem smíðaður er af Víkingbátum ehf,, leysir Von GK 113 af hólmi en Nesfiskur keypti Útgerðarfélag Sandgerðis árið 2018. Margrét GK 33 er tæplega 22 BT að stærð en lengd … Halda áfram að lesa Margrét GK 33, nýr línubátur Útgerðarfélags Sandgerðis →

Nanna Ósk II á makríl

2793. Nanna Ósk II ÞH 133. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Raufarhafnarbáturinn Nanna Ósk II ÞH 133 er á makrílveiðum þessa dagana og tók Jón Steinar þessa mynd af henni rétt utan við Keflavíkurhöfn. Það er Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. á Raufarhöfn sem gerir bátinn út en hann er af Cleopatra 38 gerð. Smíðaður hjá Trefjum í … Halda áfram að lesa Nanna Ósk II á makríl →

Trausti EA 98 á Trilludögum

396. Trausti EA 98 ex Sigurður Pálsson ÓF 66. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir af Trausta EA 98 fyrir nokkru þegar Trilludagar voru haldnir á Siglufirði. Trausti EA 98 er 8 brl. að stærð, hét upphaflega Eyrún EA 58 var smíðaður ári 1954 í skipasmíðastöð KEA. Hann var smíðaður fyrir þá … Halda áfram að lesa Trausti EA 98 á Trilludögum →

Maggi ÞH 68

5459. Maggi ÞH 68 ex Gæfa ÞH 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Maggi ÞH 68 er þarna að koma úr línuróðri um miðbik níunda áratug síðustu aldar. Maggi ÞH 68 var í eigu Þorgeirs Þorvaldssonar á Húsavík en bátinn smíðaði Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík. Bátinn smíðaði Jóhann árið 1961 fyrir Bessa Guðlaugsson sem nefndi bátinn … Halda áfram að lesa Maggi ÞH 68 →

Halla Daníelsdóttir RE 770

2728. Halla Daníelsdóttir RE 770 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Makrílveiðibáturinn Halla Daníelsdóttir RE 770 kom til Grindavíkur í gærkveldi og þá tók Jón Steinar þessa mynd. Halla Daníelsdóttir RE 770 er af gerðinni Seigur 1120 og var smíðaður á Siglufirði árið 2006. Upphaflega hét báturinn Hringur GK 18. Með því að … Halda áfram að lesa Halla Daníelsdóttir RE 770 →