2868. Jónína Brynja ÍS 55. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2014. Jónína Brynja ÍS 55 var smíðuð fyrir Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði árið 2013. Jónína Brynja ÍS 55 leysti af hólmi eldri bát útgerðinnar sem strandaði við Straumnes í desember 2012. Báturinn mælist 30 brúttótonn að stærð og er í … Halda áfram að lesa Jónína Brynja ÍS 55
Flokkur: Smábátar
Fálkatindur NS 99
2866. Fálkatindur NS 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Fálkatindur NS 99 var smíðaður hjá Seiglu ehf. á Akureyri árið 2014 fyrir Glettu litlu ehf. á Borgarfirði eystri. Fálkatindur fór amk. tvo róðra og landaði á Húsavík áður en hann hélt til heimahafnar á Borgarfirði eystri. Austurfrétt sagði svo frá komu hans 3. apríl 2014: Nýr … Halda áfram að lesa Fálkatindur NS 99
Gullhólmi SH 201
2911. Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Gullhólmi SH 201 kom til löndunar á Húsavík 3. nóvember árið 2017 og þá voru þessar myndir teknar. 2911. Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þegar Gullhólmi var afhentur eigendum sínum haustið 2015 birtist eftirfarandi frétt á vef Fiskifrétta: Nýlega afhenti Seigla ehf. á Akureyri nýjan … Halda áfram að lesa Gullhólmi SH 201
Einar Hálfdáns ÍS 11
2790. Einar Hálfdáns ÍS 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016 Einar Hálfdáns ÍS 11 siglir hér inn til Hafnarfjarðar í maímánuði árið 2016. Einar Hálfdáns er af gerðinni Cleopatra 38 frá Trefjum hf. í Hafnarfirði. Hann er 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Smíðaður fyrir Blakksnes ehf. í Bolungarvík árið 2009 en eigandi hans í dag … Halda áfram að lesa Einar Hálfdáns ÍS 11
Sædís Bára GK 88
2829. Sædís Bára GK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Sædís Bára GK 88 var smíðuð á Suðurnesjunum og sjósett í júnímánuði árið 2012. Sædís Bára var með heimahöfn í Garði en eigandi hennar var H. Pétursson ehf. Útgerðarsaga bátsins, sem var tæplge 19 BT að stærð, varð ekki löng því hann varð eldi að bráð … Halda áfram að lesa Sædís Bára GK 88
Ósk ÞH 54
2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ósk ÞH 54 kemur til hafnar á Húsavík í dag en hún er á netum. Guðný er tæp 12 bt. að stærð, af AWIgerð og smíðuð í Færeyjum 1999. Það er Sigurður Kristjánsson sem gerir hana út. Hér má lesa nánar um Ósk ÞH 54 Með … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54
Kallarnir á Vininum
1750. Vinur ÞH 73 ex Matthildur EA 222. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Þær myndir sem nú birtast voru teknar þann 3. september árið 2008 og sýna Vin ÞH 73 koma að landi á Húsavík og löndun úr honum. Þann dag skrifað ég eftirfarandi á gömlu síðuna: Þessar myndir tók ég í dag þegar netabáturinn Vinur … Halda áfram að lesa Kallarnir á Vininum
Hreifi í skveringu sumarið 2008
5466. Hreifi ÞH 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hreifi ÞH 77 frá Húsavík er á þessum myndum í skveringu sumarið 2008. Þarna er eigandi hans Héðinn Helgason eitthvað að bardúsa áður en borinn var botnfarvi á bátinn. Hreifi var smíðaður fyrir Héðinn Maríusson, afa Héðins, árið 1973. 5466. Hreifi ÞH 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. … Halda áfram að lesa Hreifi í skveringu sumarið 2008
Fjóla SH 7
2070. Fjóla SH 7 ex Kópur Gk 175. Ljósmynd Alfons Finnsson. Fjóla SH 7 kemur hér að landi í Ólafsvík eftir makrílveiðiferð. Fjóla SH 7 sem er í eigu Þórishólma ehf. í Stykkishólmi var smíðuð í Stálsmiðjunni árið 1990 fyrir Garðar Garðarsson útgerðarmann í Keflavík. Báturinn fékk nafnið Jón Garðar KE 1. Hann var 9,7 … Halda áfram að lesa Fjóla SH 7
Happadís GK 16
2652. Happadís GK 16 ex Spútnik 4 AK 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Happadís GK 16 kemur hér til hafnar í Sandgerði í lok aprílmánaðar árið 2008. Sverrir Þór Jónsson gerði Happadísina út og var skiptjóri á henni. Hann var sérklega fengsæll á henni og sem dæmi var Happadís aflahæst krókaaflamarksbáta árið 2007 með 1.108 … Halda áfram að lesa Happadís GK 16









