Fengur ÞH 207 á landleið í dag

2125. Fengur ÞH 207 . Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Hér siglir grásleppubáturinn Fengur ÞH 207 með Látraströndinni á leið sinni til hafnar á Grenivík eftir að hafa dregið netin við Flatey. Það eru feðgarnir Jón Þorsteinsson og Víðir Örn sonur hans sem róa á Feng og að sögn Víðis hafa aflabrögð verið ágæt. Fengur … Halda áfram að lesa Fengur ÞH 207 á landleið í dag

Geirfugl GK 66 kom til Grindavíkur í gær

2500. Geirfugl GK 66 ex Oddur á Nesi ÓF 176. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Geirfugl GK 66 kom til heimahafnar í Grindavík í gær eftir að hafa róið fyrir norðan frá því Stakkavík eignaðist hann á dögunum. Eins og kom fram á síðunni fyrir skömmu höfðu Stakkavík ehf. og BG nes ehf. bátaskipti. Geirfugl GK … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66 kom til Grindavíkur í gær

Bára ÞH 7

1300. Bára ÞH 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bára ÞH 7 er hér á útleið frá Húsavík áleiðis á grásleppumiðin vestur undan um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Bára ÞH 7 var smíðuð af Herði Björnssyni á Borgarfirði eystra árið 1973 fyrir Jón B. Gunnarsson og Kristinn Lúðvíksson á Húsavík. Hún er smíðuð úr furu og … Halda áfram að lesa Bára ÞH 7

Drónamyndir af Indriða Kristins BA 751

2947. Indriði Kristins BA 751 á leið inn til Grindavíkur í dag. Ljósmynd Jón Steinar. Þrátt fyrir að vera búinn að birta myndir af Indriða Kristins BA 751 í tvígang á stuttum tíma er ekki hægt annað en að birta þessar sem Jón Steinar tók á drónann í dag. 2947. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Drónamyndir af Indriða Kristins BA 751

Sævaldur við bryggju á Húsavík

6790. Sævaldur ÞH 216 ex Hafey SK 94. Ljósmynd Hafþór Hreiðrsson 2004. Sævaldur ÞH 216 liggur hér við bryggju á Húsavík á grásleppuvetíðinni árið 2004. Sævaldur var smíðaður af Herði Björnssyni í Garðabæ árið 1986. Hann er 6,63 brl. að stærði búinn 61 hestafla Cumminsvél. Ekki er ég með það hvað hann hét í upphafi … Halda áfram að lesa Sævaldur við bryggju á Húsavík