Hraunsvík dregur netin út af Arfadalsvík

1907. Hraunsvík GK 75 ex Konráð SH 60. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar drónamyndir í morgun af netabátnum Hraunsvík GK 75 draga netin út af Arfadalsvík rétt vestan Grindavíkur. Aflinn hjá þeim Viktori Jónssyni og Brynjólfi Gíslasyni sem róa á Hraunsvíkinni og eru eigendur Víkurhrauns ehf. sem gerir bátinn út var 2 … Halda áfram að lesa Hraunsvík dregur netin út af Arfadalsvík

Óli á Stað GK 99 í innsiglingunni til Grindavíkur

2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þessar glæsilegu myndir tók Jón Steinar í gærkveldi þegar línubáturinn Óli á Stað GK 99 kom að landi í Grindavík. Það var þungur sjór með sunnanbáru og þegar að vindur fór að blása að norðan á móti bárunni þá ýfist sjórinn og brimar, þó svo … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99 í innsiglingunni til Grindavíkur

Vésteinn GK 88 kemur að

2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir í gærkveldi þegar línubáturinn Vésteinn GK 88, sem Einhamar Seafood ehf, gerir út, kom að landi í Grindavík. 2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar 2019. "Það var aðeins farið að anda að norðan á móti sunnanbárunni í gærkveldi þegar að Vésteinn … Halda áfram að lesa Vésteinn GK 88 kemur að

Sævík GK 757 að draga línuna

2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grindvíski línubáturinn Sævík GK 757 er hér að draga línuna á dögunum skammt undan sinni heimahöfn. Það er Vísir hf. sem gerir bátinn út en hann hét áður Óli Gísla GK 112 frá Sandgerði. Báturinn var smíðaður fyrir Sjávarmál ehf. í Sandgerði … Halda áfram að lesa Sævík GK 757 að draga línuna

Margrét GK 707 á skaki

2794. Margrét GK 707 ex Margrét HF 4. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Handfærabáturinn Margrét GK 707 er að veiðum skammt utan við Grindavík á þessum myndum Jóns Steinars frá því um daginn. Margrét GK 707 hét upphaflega Ásdís SH 154 og var smíðuð árið 2010. Hefur heitið þessum tveim nöfnum en Margrét hefur verið HF … Halda áfram að lesa Margrét GK 707 á skaki

Máni ÞH 98 að draga grásleppunetin við Tjörnes

1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Máni ÞH 98 er hér að draga grásleppunetin við austanvert Tjörnes á sumardaginn fyrsta. Máni ÞH 98 var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988 og hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 og var lengi af gerður út frá Bolungarvík. Þjóðólfur var síðan gerður út frá … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98 að draga grásleppunetin við Tjörnes

Óli á Stað GK 99 kemur til hafnar í Grindavík

2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Óli á Stað GK 99 kemur hér til hafnar í Grindvík á öðrum degi páska í ár. Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í Seiglu, og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og mælist 29.95 BT að stærð. Það er … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99 kemur til hafnar í Grindavík

Fríða Dagmar ÍS 103

2817. Fríða Dagmar ÍS 103. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Bolvíski línubáturinn Fríða Dagmar ÍS 103 er á þessum myndum að koma inn til Grindavíkur undir kvöld í gær í suðaustan skítveðri eins og ljósmyndarinn orðaði það. Fríða Dagmar ÍS 103 er í eigu útgerðarfélagsins Salting ehf. og var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum árið 2012. Upphaflega … Halda áfram að lesa Fríða Dagmar ÍS 103

Þórður ÞH 92

5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Þórður ÞH 92 í fjörunni neðan Beinabakkans á Húsavík og greinilega verið að skvera bátinn. Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík smíðaði Þórð ÞH 92 fyrir Viðar Þórðarson árið 1961. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 heestafla Volvo Penta. Ekki … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92

Magnús ÞH 34 bæði blár og rauður

2076. Magnús ÞH 34 ex Keilir AK 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Fiskverkunin Ugg ehf. á Húsavík keypti Keili Ak 26 vorið 2004 og gaf honum nafnið Magnús ÞH 34. Magnús ÞH 34 var gerður út frá Húsavík um nokkurra ára skeið en á síðari hluta ársins 2010 var hann seldur til Þórshafnar á Langanesi. … Halda áfram að lesa Magnús ÞH 34 bæði blár og rauður