Smábátar við bryggju

Smábátar við bryggju á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sýnir smábáta við bryggju á Húsavík síðdegis í dag. Háey I ÞH 295 kom af vertíð í gær og verið að landa úr Karólínu ÞH 100 eftir róður dagsins. Strandveiðibátar í forgrunni. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Smábátar við bryggju →

Jón Pétur að draga grásleppunetin

2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022 Jón Steinar tók þessar myndir af grásleppubátnum Jóni Pétri RE 411 í gær þar sem hann var að draga netin á Hraunsvíkinni. Jón Pétur var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987 og lengdur tíu árum síðar. 2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmyndir Jón Steinar … Halda áfram að lesa Jón Pétur að draga grásleppunetin →

Hópsnes GK 77

2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Hópsnes GK 77 kemur hér að landi í Grindavík í gær. Stakkavík gerir hann út. Upphaflega hét báturinn Katrín RE 375 og var smíðaður árið 2000 hjá Bátagerðinni Samtak fyrir Rafn ehf. í Reykjavík. Sumarið 2006 varð báturinn SH 575 og heimahöfn Ólafsvík. … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77 →

Laxinn á Naustavíkurhólnum

5920. Laxinn ÞH 177 ex Laxinn GK 177. Ljósmynd Hörður Sigurgeirsson 2022. Laxinn á Naustavíkurhólnum voru skilaboðin sem fylgdu þessari mynd sem sýnir Reyni Hilmarsson við handfæraveiðar á Laxinum. Naustavíkurhóllinn er í vestanverðum Skjálfandaflóa. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Laxinn á Naustavíkurhólnum →

Hafþór EA 19

7144. Hafþór EA 19 ex Hafþór AK 140. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Hafþór EA 19 kemur hér að landi í Sandgerðisbót í dag, á fyrsta degi strandveiðitímabilsins 2022. Báturinn hét upphaflega Diddó BA 38 en hann var smíðaður hjá Trefjum hf. í Hafnarfirði árið 1989. Síðan þá hefur hann heitið mörgum nöfnum en það … Halda áfram að lesa Hafþór EA 19 →