1062. Kap II VE 4 ex Óskar Magnússon AK 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Kap II VE 4 liggur hér við bryggju á Akureyri um árið og í baksýn má greina Sæþór EA 101 og Sigurð Pálmason HU 333. Kap VE 4 var smíðuð í Stálvík árið 1967 og hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177. … Halda áfram að lesa Kap II við bryggju á Akureyri
Flokkur: Nóta- og togskip
Ásgrímur kom með um 1000 tonn af síld
2780. Ásgrímur Halldórsson SF 250 ex Lunar Bow. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2020. Ásgrímur Halldórsson SF 250 kemur hér að landi á Hornafirði í gær með um 1000 tonn af síld sem fer til vinnslu hjá Skinney-Þinganesi. Ásgrímur Hallórsson SF 250 var smíðaður hjá Simek skipamíðastöðinni í Noregi árið 2000 fyrir Lunar Fishing í Skotlandi og … Halda áfram að lesa Ásgrímur kom með um 1000 tonn af síld
Víkingur AK 100
220. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessar myndir af Víkingi AK 100 koma til hafnar í Reykjavík voru teknar um miðjan níunda áratug síðustu aldar, að haustlagi ef minni ljósmyndarans er rétt. Um Víking AK 100 er það að segja að hann hét alla tíð Víkingur AK 100 og þjónaði eigendum sínum í yfir … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100
Hafursey VE 122
1416. Hafursey VE 122 ex Steinunn SF 107. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafursey VE 122 hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var í eigu samnefnds fyrirtækis á Hellisandi. Hér má lesa sögu skipsins en það var árið 2009 sem Kópavík ehf. í Vestmannaeyjum keypti það frá Hornafirði og nefndi Hafursey VE 122. Árið 2011 keypti Vísir … Halda áfram að lesa Hafursey VE 122
Eldborg HF 13
1525. Eldborg HF 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldborg HF 13 siglir hér til hafnar á Eskifirði haustið 1984, eða 1986, og myndin var tekin úr síldveiðibátnum Geira Péturs ÞH 344. Eldborg HF 13 var smíðuð fyrir samnefnda útgerð árið 1978 og kom til heimahafnar í Hafnarfirði 30. desember það ár. Skipið var smíðanúmer 136 hjá … Halda áfram að lesa Eldborg HF 13
Svanur RE 45
1029. Svanur RE 45 ex Esjar RE 400. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Svanur RE 45 er hér á siglingu á einhverjum firðinum fyrir austan en myndina tók Hreiðar Olgeirsson á síldarvertíð 1982 eða 3. Svanur RE 45 hét upphaflega Brettingur NS 50 og var smíðaður árið 1967 fyrir Tanga h/f á Vopnafirði í Flekkufirði í Noregi. … Halda áfram að lesa Svanur RE 45
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson á Djúpavogi, skipverji á Ljósafelli SU 70, tók þessa mynd af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 á miðunum seint í ágústmánuði. Eskja hf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
Jóna Eðvalds
2618. Jóna Eðvalds SF 200 ex Krossey SF 20. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson 2020. Uppsjávarveiðiskipið Jóna Eðvalds SF 200 kom til Hafnar í Hornafirði í dag og tók Sverrir Aðalsteinsson þessa mynd eftir að hún lagðist að bryggju. Á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess segir: Jóna Eðvalds var smíðuð hjá Flekkefjord skipasmíðastöðinni í Noregi árið 1975. Skipið hét áður … Halda áfram að lesa Jóna Eðvalds
Nýr Börkur sjósettur í Póllandi
Börkur NK 122. Ljósmynd svn.is 2020. Í gær hófst vinna við að sjósetja nýjan Börk en hann er í smíðum hjá danska fyrirtækinu Karstensens Skibsværft AS. Skrokkur skipsins er smíðaður í skipasmíðastöð Karstensens í Gdynia í Póllandi og þar fer sjósetningin fram. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að skrokkurinn verði dreginn í nóvember nk. til Skagen … Halda áfram að lesa Nýr Börkur sjósettur í Póllandi
Skinney SF 20 kom til Grindavíkur í dag
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Skinney SF 20 kom til löndunar í Grindavík í dag en hún er á humarveiðum sem ganga tregla nú sem síðustu ár. Skinney, var líkt og systurskipið Þórir SF 77, smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 kom til Grindavíkur í dag









