Heimaey VE 1 að loðnuveiðum við Grindavík

2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar flaug drónanum sínum á haf út í dag til að mynda loðnuskipið Heimaey VE 1 þar sem hún var að veiðum rétt vestan Grindavíkur. Jón Steinar hefur eftir Ólafi Einarssyni skipstjóra á Heimaey að það hafi verið ágætis kropp hjá þeim. Þeir voru þarna … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 að loðnuveiðum við Grindavík →

Jón Kjartansson SU 111

2949. Jón Kjartansson SU 111 ex Charisma LK 362. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2021. Jón Kjartansson SU 111 er hér á loðnumiðunum sunnan við land en myndina tók Börkur Kjartansson vélstjóri á Víkingi AK 100. Jón Kjartansson SU 111 hét áður Charisma LK 362 og var með heimahöfn í Leirvík á Hjaltlandseyjum. Hann var smíðaður í … Halda áfram að lesa Jón Kjartansson SU 111 →

Víkingur á toginu

220. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Víkingur AK 100 frá Akranesi er hér á toginu á rækjumiðunum úti fyrir Norðurlandi, sennilega sumarið 1988. Um Víking er litlu við að bæta enda hefur hann áður borið fyrir augu þeirra sem sækja síðuna heim. Sögu Víkings AK 100 má lesa í greina Haraldar Bjarnasonar í Skessuhorni Með … Halda áfram að lesa Víkingur á toginu →

Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11

1031. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 ex Magnús NK 72. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 hét upphaflega Magnús NK 72 og var smíðaður fyrir Ölver hf. á Neskaupsstað. Smíðin fór fram árið 1967 í Lindstöl Skips & Baatbyggeri A/S í Risör í Noregi og var með smíðanúmer 263. Magnús, sem var 274 … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 →

Ljósfari RE 102

973. Ljósfari RE 102 ex Kári Sölmundarson RE 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnubáturinn Ljósfari RE 102 er hér við bryggju í Sundahöfn vel hlaðið loðnu en myndin var tekin ca. 1985 Upphaflega hét báturinn Dagfari ÞH 40 og var smíðaður árið 1965 í Boizenburg A-Þýskalandi fyrir bræðurnar Stefán og Þór Péturssyni á Húsavík.  Árið 1967 … Halda áfram að lesa Ljósfari RE 102 →

Hólmaborg SU 11

1525. Hólmaborg SU 11 ex Eldborg HF 13. Ljósmynd Sigmar Ingi Ingólfsson 2003. Á þessum myndum má sjá loðnuskipið Hólmaborgu SU 11 sigla fram hjá Grindavík vorið 2003, sennilega á heimstími til Eskifjarðar með fullfermi af loðnu. Myndirnar tók Sigmar Ingi Ingólfsson þá skipverji á Erni KE 13. Hólmaborg SU 11 hét upphaflega Eldborg HF … Halda áfram að lesa Hólmaborg SU 11 →

Guðmundur Ólafur í slipp á Akureyri

1020. Guðmundur Ólafur ÓF 91 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðmundur Ólafur ÓF 91 frá Ólafsfirði er hér uppi í slippnum á Akureyri um árið en hann var keyptur til Ólafsfjarðar í ársbyrjun 1983. Upphaflega hét skipið Börkur NK 122 frá Neskaupstað, smíðaður í Noregi árið 1966.  Árið 1972 fékk hann nafnið Bjarni … Halda áfram að lesa Guðmundur Ólafur í slipp á Akureyri →

Hákon ÞH 250

1807. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Nóta- og togskipið Hákon ÞH 250 frá Grenivík er hér að rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi sumarið 1989. Hákon kom til landsins í desembermánuði 1987 en frá komu hans sagði svo í 4 tbl. Ægis 1988: Nýtt nóta- og togveiðiskip bættist við fiskiskipastól Íslendinga 18. desembers.l., en þá … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250 →