Jón Finnsson RE 506

1283. Jón Finnsson GK 506 ex Havbas. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Jón Finnsson GK 506 er hér með nótina á síðunni en myndina tók Jón Páll Ásgeirsson fyrir margt löngu síðan á loðnumiðunum. Jón Finnsson GK 506 var í eigu Gauksstaða h/f í Garði og var keyptur frá Noregi árið 1972. Hann var smíðaður í … Halda áfram að lesa Jón Finnsson RE 506 →

Heimaey að kasta nótinni

2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Álsey VE 2 tók þessar myndir fyrir 40 mínútum og sýna þær Heimaey VE 1 kasta nótinni. Skipin voru þá á loðnumiðnum út af Snæfellsnesi ásamt Hoffelli SU 80. 2812. Heimaey VE 1. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2021. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Heimaey að kasta nótinni →

Bjarni Ólafsson AK 70

2909. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Fiskeskjer. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2021. Hilmar Örn Kárason skipverji á Venusi NS 150 tók þessa mynd á loðnumiðunum í morgun en hún sýnir Bjarna Ólafssyni AK 70 með nótina á síðunni. 600 tonna kast hélt Hilmar. Runólfur Hallfreðsson ehf. keypti skipið til landsins árið 2015 en það var … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70 →

Suðurey VE 12

130. Suðurey VE 12 ex Júpíter ÞH 61. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 12 hét upphaflega Gerpir NK 106 og var smíðaður í Þýskalandi fyrir 1960 fyrir Bæjarútgerð Neskaupsstaðar. Gerpir NK 106 var seldur Júpíter h/f í Reykjavík árið 1960 og fékk þá nafnið Júpíter RE 161. Hrólfur Gunnarsson skipstjóri keypti Júpíter 1978 og ári … Halda áfram að lesa Suðurey VE 12 →

Í vari inn á Stakksfirði

Polar Amaroq og Hákon EA 148 á Stakksfirði í dag. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar myndaði nokkur skip inni á Stakksfirðinum í dag þar þar sem þau lágu í vari fyrir veðrinu. Þarna mátti kenna Tómas Þorvaldsson GK 10, Valdimar GK 195, Hákon EA 148 og Polar Amaroq. Skip í vari á Stakksfirði … Halda áfram að lesa Í vari inn á Stakksfirði →

Jóna Eðvalds dælir úr nótinni hjá Víkingi

2618. Jóna Eðvalds SF 200 ex Krossey SF 20. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2021. Jóna Eðvalds SF 200 dælir hér loðnu úr nótinni hjá Víkingi AK 100 en myndina tók Börkur Kjartansson á miðunum fyrir skömmu. Víkingur var kominn með skammtinn og fengu Hornfirðingarnir 260-270 tonn sem var um helmingur þess sem fékkst í kastinu. Með … Halda áfram að lesa Jóna Eðvalds dælir úr nótinni hjá Víkingi →

Börkur NK 122 á Skjálfanda

2865. Börkur NK 122 ex Malene S. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Börkur NK 122 kom hér inn á Skjálfandaflóa í morgun á leið sinni á loðnumiðin. Sennilega að kanna hvort eitthvað sé að finna hér. Börkur NK 122 hét áður Malene S frá Noregi og var keyptur hingað til lands af Síldarvinnslunni hf. í febrúar árið 2014. Börkur … Halda áfram að lesa Börkur NK 122 á Skjálfanda →