1609. Stakfell ÞH 360. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórshafnartogarinn Stakfell ÞH 360 er hér á toginu en myndin var tekin úr Geira Péturs ÞH 344 skömmu fyrir 1990. Í 10 tbl. Ægis árið 1982 sagði m.a svo frá: 28. júní s.l. kom skuttogarinn Stakfell ÞH 360 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Þórshafnar. Skipið er hannað … Halda áfram að lesa Stakfell ÞH 360
Author: Hafþór Hreiðarsson
Ólafur GK 33
1105. Ólafur GK 33 ex Þorleifur EA 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fiskanesbáturinn Ólafur GK 33 kemur hér að landi í Grindavík skömmu fyrir aldamótin síðustu. Fiskanes hf. keypti bátinn frá Grímsey árið 1994 en þar hét hann Þorleifur EA 88 og var í eigu Sigurbjarnar ehf. sem hafði gert bátinn út frá árinu 1988. Upphaflega … Halda áfram að lesa Ólafur GK 33
Þorsteinn GK 15
926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eikarbáturinn Þorsteinn GK 15, sem gerður var lengi út frá Raufarhöfn, kemur hér að landi á Húsavík um árið. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Falkenberg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15. Þorsteinn er … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 15
Ófeigur III VE 325
707. Ófeigur II VE 325. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Ófeigur III VE 325, sem hér siglir inn Reyðarfjörð, var smíðaður í Hollandi árið 1955 og hét sama nafninu alla tíð. Eigendur hans frá upphafi árs 1955 voru þeir Þorstein Sigurðsson og Ólaf Sigurðsson í Vestmannaeyjum. Báturinn sem upphaflega mældist 66 brl. að stærð var lengdur á … Halda áfram að lesa Ófeigur III VE 325
Ársæll Sigurðsson HF 80
2468. Ársæll Sigurðsson HF 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Ársæll Sigurðsson HF 80, sem hér sést koma til hafnar í Þorlákshöfn í marsmánuði 2006, var smíðaður í Kína árið 2001. Báturinn, sem upphaflega var í eigu Viðars Sæmundssonar í Hafnarfirði, heitir í dag Guðbjörg GK 77 og lesa má um hana hér. 2468. Ársæll Sigurðsson … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80
Óseyri ÍS 4
1348. Óseyri Ís 4 ex Eyvindur Vopni NS 70. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Óseyri ÍS 4 var upphaflega Aðalvík KE 95, einn af fimm minni Spánartogurunum sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga á sínum tíma. Aðalvík KE 95 kom síðust togaranna fimm en hún kom til heimahafnar í Keflavík 5. júní 1974. Skipið, sem var 451 brl. … Halda áfram að lesa Óseyri ÍS 4
Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík
973. Dagfari ÞH 40. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þesari mynd Hreiðars Olgeirssonar liggur Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík og landar síld. Þetta var sá fyrri, sem kom 1965 og fékk nafnið Ljósfari ÞH 40 þegar sá seinni kom árið 1967. Báðir smíðaðir í Boizenburg í A-Þýskalandi fyrir Barðann hf. á Húsavík. Með því … Halda áfram að lesa Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík
Hafsúla BA 741
1470. Hafsúla BA 741 ex Hafsúla ÍS 741. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Hafsúla BA 741 sem er á þessari mynd Þorgeirs Baldurssonar heitir Salka í dag og er hvalaskoðunarbátur á Húsavík. Upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hafsúla BA 741
Þorsteinn GK 16
1159. Þorsteinn GK 16 ex Svanur SH 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Þorsteinn GK 16 var keyptur til Grindavíkur í aprílmánuði 1997 og kom í stað nafna síns sem strandaði undir Krísuvíkurbjargi 10. mars sama ár. Báturinn, sem Hóp hf. keypti frá Stykkishólmi þar sem hann bar nafnið Svanur SH 111, var 138 brl. að … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 16
Árni ÞH 127
1493. Árni ÞH 127 ex Ástvaldur NK 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Árni ÞH 127 sem hér sést koma til hafnar á Húsavík var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði árið 1977. Báturinn, sem var 6,30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Draupni Marteinsson á Neskaupstað sem nefndi bátinn Ástvald NK 52. Bræðurnir Bragi og … Halda áfram að lesa Árni ÞH 127









