Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í morgun

2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Togskipið Vörður ÞH 44 kom til hafnar í Grindavík í morgun með um 70 tonna afla en hann fór út kl. 16 sl. föstudag. Góð veiði greinilega. Jón Steinar var á ferðinni með myndavélina eins og oft áður og tók þessar myndir sem birtast nú. 2962. Vörður … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í morgun

Þórður Jónasson EA 350 kemur að landi í Krossanesi

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessar myndir sem hér birtast voru teknar um árið og sýna loðnuskipið Þórð Jónasson EA 350 koma drekkhlaðið að bryggju í Krossanesi við Eyjafjörð. Þórður Jónasson EA 350, sem í dag ber nafnið Hörður Björnsson ÞH 260 og er gert út á … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350 kemur að landi í Krossanesi

Dóri GK 42 kemur að landi í Grindavík

2604. Dóri GK 42 ex Óli G HF 22. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línubátar sem róa frá Grindavík hafa verið að fiska vel að undanförnu og þessar myndir af Dóra GK 42 tók Jón Steinar í vikunni. Þarna var Dóri að koma með ein 10 tonn og uppistaðan þorskur eins og ljósmyndarinnn orðaði það. Dóri GK … Halda áfram að lesa Dóri GK 42 kemur að landi í Grindavík

Samherji leigir Smáey VE

2444. Smáey VE 444 ex Vestmannaey VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Vegna seinkunar á afhendingu nýs Harðbaks hefur Samherji tekið togarann Smáey VE-444 á leigu næstu tvo mánuðina. Um er um að ræða 485,6 brúttótonna skuttogara í flokki skipa undir 29 metra lengd en skipið var smíðað af Nordship skipasmíðastöðinni í Gdynia í Póllandi … Halda áfram að lesa Samherji leigir Smáey VE

Magni kom til hafnar í Reykjavík í dag

Magni kom til Reykjavíkur í dag. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson. Magni, nýr dráttarbátur Faxaflóahafna, kom í fyrsta skipti til hafnar í Reykjavík í dag og tók Guðmundur St. Valdimarsson þessa mynd af honum. Á vef Faxaflóhafna segir m.a: Magni er 32 metra langur, 12 metra breiður og með tvær 2.025kW aðalvélar (samanlagt 6.772 hestöfl). Togkraftur … Halda áfram að lesa Magni kom til hafnar í Reykjavík í dag

Árni Friðriksson í Hafnarfirði

2350. Árni Friðrikson RE 200 við bryggju í Hafnarfirði. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 200 lagðist að bryggju og mátaði sig við framtíðaraðstöðu Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði. Magnús Jónsson tók þessar myndir í dag og sendi síðunni. 2350. Árni Friðrikson RE 200 við bryggju í Hafnarfirði. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Með því að … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson í Hafnarfirði

Arnþór GK 20

2325. Arnþór GK 20 ex Geir KE 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Hér birtast myndir af dragnótabátnum Arnþóri GK 20 koma til hafnar í Sandgerði í júnímánuði árið 2012. Arnþór GK 20 hét upphaflega Reykjaborg RE 25 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998. Reykjaborgin var lengd um fjóra metra í Ósey í … Halda áfram að lesa Arnþór GK 20