2320. Anna ÓF 83 ex Már ÍS 125. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Anna ÓF 83 sem hér sést koma til hafnar á Siglufirði í byrjun vikunnar hét upphaflega Blossi ÍS 125 og var frá Flateyri. Eigandi Hlunnar ehf. þar í bæ. Báturinn er af Gáskagerð og samkvæmt vef Árna Björns Árnasonar, aba.is, einn þriggja slíkra … Halda áfram að lesa Anna ÓF 83
Author: Hafþór Hreiðarsson
Whales EA 200 kemur að landi
500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 kemur hér að landi á Hauganesi í byrjun vikunnar. Báturinn, sem er 53 brl. að stærð, hét upphaflega Gunnar Hámundarson GK 357 og var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. … Halda áfram að lesa Whales EA 200 kemur að landi
Viggó SI 32
1544. Viggó SI 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Viggó SI 32 sést hér koma til hafnar á Siglufirði á dögunum en þar hefur hann átt heimahöfn síðan árið 1979. það ár var hann smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd fyrir Sverri Björnsson á Siglufirði sem hefur átt hann allar götur síðan. Viggó er 8,77 … Halda áfram að lesa Viggó SI 32
Dísa SI 121
2356. Dísa SI 121 ex Otur HF 64. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sómabáturinn Dísa SI 121 kemur hér að landi á Siglufirði í vikunni en hún var gerð út til strandveiða í sumar. Dísa var smíðuð á sínum tíma í Bátasmiðju Guðmundar en var endurbyggð af Hafþóri Gylfa Jónssyni sem gaf bátnum nafnið Gefjun BA … Halda áfram að lesa Dísa SI 121
Smári ÓF 20 á Siglufirði
2580. Smári ÓF 20 ex Digranes 1 NS 125. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Smári ÓF 20 var einn þeirra strandveiðibáta sem lönduðu á Siglufirði í gær en hann er gerður út af samnefndu fyrirtæki á Ólafsfirði. Smári ÓF 20 hét upphaflega Hópsnes GK 77 frá Grindavík og er rúmlega 11 brl. að stærð. Báturinn er af … Halda áfram að lesa Smári ÓF 20 á Siglufirði
Meira af Jökli SK 16
288. Jökull SK 16 ex Arnar í Hákoti SH 37. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast við Hafnarfjarðahöfn í kvöld og sýna þær eikarbátinn Jökul SK 16 þar sem hann liggur á botni hafnarinnar. Eins og kom fram á síðunni í gær sökk hann við bryggjuna síðdegis þann … Halda áfram að lesa Meira af Jökli SK 16
Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í dag
2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Halldór NS 302 frá Bakkafirði kom til Húsavíkur í hádeginu í dag þar sem báturinn verður skveraður. Halldór NS 302 er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði en eins og kunnugt er keypti GPG Seafood á Húsavík það fyrirtæki … Halda áfram að lesa Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í dag
Merike blár og rauður
IMO 9227534. Merike EK 1802 ex Regina C. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Það hafa áður birst hér myndir af rækjutogaranum Merike og það bæði í bláa litnum sem var á honum þegar hann var keypt frá Grænlandi og þeim Reyktalsrauða. En hér koma fyrstu myndirnar sem birtast af togaranum í rauða litnum á miðunum því … Halda áfram að lesa Merike blár og rauður
Bíldsey SH 65
2704. Bíldsey SH 65 ex Bíldsey II SH 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Bíldsey SH 65 kom að landi á Siglufirði síðdegis í dag og voru þessar myndir teknar þá. Það kom að því að ég náði nokkuð góðum myndum af henni en hún hét upphaflega Konni Júl GK 704 og var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Bíldsey SH 65
Jökull SK sökk í Hafnarfjarðarhöfn
288. Jökull SK 16 sokkinn í hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Eikarbáturinn Jökull SK 16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn í dag en þar hefur hann legið um allanga hríð. Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn lá utan á Jökli en sem betur fer tókst að skera hann frá áður en illa færi. Báturinn hét upphaflega Árni Geir … Halda áfram að lesa Jökull SK sökk í Hafnarfjarðarhöfn









