Sveinbjörn Jakobsson á Ísafirði

260. Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Heiðar Kristinsson 2006. Rakst á þessa mynd á Gömul íslensk skip og fékk leyfi ljósmyndarans, Heiðars Kristinssonar, til að birta hana hér. Þarna er Sveinbjörn Jakobsson SH 10 að láta úr höfn á Ísafirði áleiðis til Húsavíkur en þangað hafi báturinn verið seldur. Í brúnni er Einar Ófeigur Magnússon … Halda áfram að lesa Sveinbjörn Jakobsson á Ísafirði

Gulltoppur ÁR 321

1269. Gulltoppur ÁR 321 ex Stakkavík ÁR 107. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Gulltoppur ÁR 321 kemur hér til hafnar í Ólafsvík vorið 1987 en Sveinn S. Steinarsson í Þorláksshöfn keypti bátinn, sem þá hét Stakkavík ÁR 107, vorið 1986. Báturinn hét upphaflega Borgþór GK 100 eins og áður hefur komið fram á síðunni og var … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321

Ramoen á toginu

IMO 9761102. Ramoen M-1-VD. Ljósmynd Björn Valur Gíslason 2020. Á þessari mynd Björns Vals Gíslasonar skipstjóra má sjá norska frystitogarann Ramoen M-1-VD á toginu. Ramoen er í eigu Ramoen A/S og er heimahöfn hans Álasund. Togarinn, sem var afhentur árið 2016, var smíðaður í Astillero Armon skipasmíðastöðinni í Gijon á Norður-Spáni. Ramoen er 75,1 metrar … Halda áfram að lesa Ramoen á toginu

Stakkavík ÁR 107

1269. Stakkavík ÁR 107 ex Sigþór ÁR 107. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Stakkavík ÁR 107 sem hér sést á siglingu til hafnar í Þorlákshöfn hét upphaflega Borgþór GK 100 og var smíðaður í Bátalóni árið 1972. Borgþór GK 100, sem var 45 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jóhann Þórlindsson í Ytri Njarðvík en ári síðar … Halda áfram að lesa Stakkavík ÁR 107

Rifsnes SH 44

1136. Rifsnes SH 44 ex Örvar BA 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Rifsnes SH 44, sem á þessum myndum sést koma til hafnar á Húsavík þann 6. október 2010, var í eigu Hraðfrystihúss Hellisands. Rifsnesið var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. … Halda áfram að lesa Rifsnes SH 44

Brimfaxi EA 10

6795. Brimfaxi EA 10 ex Kristbjörg RE 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Brimfaxi EA 10 var smíðaður árið 1987 í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði og hét upphaflega Kristbjörg RE 95. Því nafni hélt báturinn til ársins 2017 er hann fékk núverandi nafn. Útgerð og eigandi Brimfaxi ehf. og heimahöfnin Dalvík þar sem þessi mynd var … Halda áfram að lesa Brimfaxi EA 10

Indriði og Haukur

2947. Indriði Kristins BA 752 - 1269. Haukur BA 56. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það var fallegt sumarkvöldið við Tálknafjörð þegar þessar myndir sem nú birtast voru teknar. Staddur í Stóra-Laugardal þegar ég sá til Indriða Kristins á útleið og ekkert annað í stöðunni en að hlaupa niður í fjöru með stóru linsuna á og … Halda áfram að lesa Indriði og Haukur