Bátar við bryggju í Sandgerði. Ljósmynd Hörður Harðarson. Þessa mynd tók Höddi vinur minn, þá skipverji á Arney KE 50, í Sandgerðishöfn um árið. Sýnir hún nokkra báta við bryggju og þar ber mest á Hafnarbergi RE 404. Fyrir innan það eru Víðir II GK 275 og Mummi GK 120. Ofar við bryggjuna eru innst … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju í Sandgerði
Author: Hafþór Hreiðarsson
Aqissiaq II GR6-168
IMO 9012654. Aqissiaq II GR6-168 ex Qingaaq. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2021. Grænlenski báturinn Aqissiaq II GR6-168 kom til Vestmannaeyja á dögunum á heimleið frá Danmörku. Þar var báturinn í endurbyggingu en hann stundar rækjuveiðar. Upphaflega hét báturinn Qingaaq og var smíðaður árið 1988 hjá Skaarup & Salskov APS í Thyborøn, Danmörku. Báturinn er 23,9 metrar … Halda áfram að lesa Aqissiaq II GR6-168
Hvanney í slipp á Akureyri
1426. Hvanney SF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvanney SF 51 frá Hornafirði er hér í slipp á Akureyri um árið og það var Frosti ÞH 220 líka. Auk þess má sjá glitta í Ársæl EA 74. Hvanney SF 51 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1975 en eigandi bátsins var Borgey hf. á Höfn í … Halda áfram að lesa Hvanney í slipp á Akureyri
Cuxhaven NC 100
IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Cuxhaven NC 100 er hér á siglingu inn Eyjafjörð á leið sinni til Akureyrar í októbermánuði árið 2017. Hér má sjá fleiri myndir sem teknar voru þá. Cuxhaven NC 100 er í eigu Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi. Cuxhaven NC 100 sem hannaður er af … Halda áfram að lesa Cuxhaven NC 100
Særún EA 251
1527. Særún EA 251 ex Gullfaxi SH 125. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Særún EA 251 frá Árskógssandi hét upphaflega Gullfaxi SH 125 og átti heimahöfn í Grundarfirði en hér má lesa nánar um hana. Þessi mynd var tekin 1998 eða þar um bil, einhvern veginn minnir mig að það hafi verið í Eyjafjarðarálnum en kem ekki fjöllunum … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Vonin KE 2 við Jan Mayen
221. Vonin KE 2 ex Pálína SK 2. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Vonin KE 2 hét upphaflega Pálína SK 2 og var smíðuð árið 1960 fyrir Ægi hf. á Sjávarborg í Skagafirði. Báturinn var smíðaður í Hollandi og mældist í upphafi 180 brl. að stærð. Búinn 500 hestafla Kromhout aðalvél. Pálína SK 2 var seld til … Halda áfram að lesa Vonin KE 2 við Jan Mayen
Þórshamar GK 75
1501. Þórshamar GK 75 ex Götunes. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Þórshamar GK 75, sem sést hér á loðnumiðunum um árið, var keyptur af Festi hf. í Grindavík frá Færeyjum árið 1978. Hann kom til fyrsta skipti til heimahafnar í Grindavík þann 3. nóvember það ár. Í Færeyjum hét skipið Götunes, það var byggt árið 1974 … Halda áfram að lesa Þórshamar GK 75
Húsavíkurhöfn á Sjómannadaginn 1969
Bátar við bryggju á Húsavík á Sjómannadaginn árið 1969. Ljósmynd Sigurður Pétur Björnsson (Silli) Þessa skemmtilegu mynd tók Silli á Sjómannadaginn árið 1969 og sýnir hún Húsavíkurbáta við bryggju. Þarn a má m.a sjá Kristjón Jónsson SH 77 sem síðar fékk nafnið Kristbjörg ÞH 44 fremst við bryggjuna en báturinn var keyptur til Húsavíkur snemma … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á Sjómannadaginn 1969
Sighvatur kom að landi eftir stuttan túr
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Línuskipið Sighvatur GK 57 kom að landi í Grindavík í blíðunni í morgun. Þetta var stuttur túr hjá honum, aðeins tvær lagnir en hann var síðast í landi sl. fimmtudag. Aflinn hjá honum var 175 kör eftir þessar tvær lagnir sem gerir tæp 60 … Halda áfram að lesa Sighvatur kom að landi eftir stuttan túr
Lagarfoss kom til Húsavíkur í dag
IMO 9641314. Lagarfoss. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Lagarfoss, skip Eimskipafélgsins, kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarðinum. Lagarfoss var smíðaður árið 2014 og er 141 metrar að lengd. Breidd hans er 23 metrar og hann mælist 10,106 GT að stærð. Lagarfoss siglir undir færeysku flaggi með heimahöfn í Þórshöfn. IMO 9641314. Lagarfoss. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Lagarfoss kom til Húsavíkur í dag









