Barði NK 120

2865. Barði NK 120 ex Börkur II NK 122. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Skip Síldarvinnslunnar, Barði NK 120, sést hér yfirgefa Akureyri á dögunum en þar var skipið í slipp. Fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag að nú þegar kolmunnaveiðum er lokið í bili eru uppsjávarskip Síldarvinnslunnar undirbúin fyrir makrílvertíð sem gert er ráð … Halda áfram að lesa Barði NK 120 →

Bjössi Sör á leið í hvalaskoðun

1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hvalaskoðunarbáturinn Bjössi Sör siglir á Skjálfandaflóa í morgun. Báturinn hét upphaflega Sólrún EA og var smíðaður fyrir Sólrúnu h/f á Litla-Árskógssandi en hún var síðasti báturinn sem var smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA. Hér má lesa nánar um bátinn en Norðursigling keypti hann frá Breiðdalsvík haustið 2002. … Halda áfram að lesa Bjössi Sör á leið í hvalaskoðun →

Smaragd M 64 HØ

IMO: 9171034. Smaragd M 64 HØ. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 2001. Norska uppsjávarveiðiskipið Smaragd M 64 HØ frá Herøy á siglingu árið 2001 en það var smíðað árið 1999. Ekki með öllu ókunnugt Íslendingum því Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði keypti skipið til landsins sumarið 2014 og gaf því nafnið Hoffell SU 80. Skipið er sem fyrr segir … Halda áfram að lesa Smaragd M 64 HØ →

Klara Sveinsdóttir á toginu

1638. Klara Sveinsdóttir SU 50 ex Drangavík ST 71. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1993. Rækjuskipið Klara Sveinsdóttir SU 50 frá Fáskrúðsfirði togar hér á rækjuslóðinni árið 1993. Giska á að þetta sé austan við land. Akkur hf. á Fáskrúðsfirði gerði skipið út sem var 292 tonn að stærð. Smíðað í Noregi 1978 og keypt notuð til … Halda áfram að lesa Klara Sveinsdóttir á toginu →

Ronja Christopher við Kópasker

IMO 9878955. Ronja Christopher. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Norska brunnskipið Sonja Christopher var framundan Röndinni á Kópaskeri í gær en þar var verið að dæla seiðum úr nýju landeldisstöð Rifóss út í skipið. Þaðan er svo siglt með seiðin austur á firði þar sem þau er sett í sjókvíar á vegum Fiskeldis Austfjarða. Ronja Christopher … Halda áfram að lesa Ronja Christopher við Kópasker →

Grindvíkingur

1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1994. Þessa myndasyrpu af Grindvíkingi GK 606 tók Olgeir Sigurðsson árið 1994 skipið var gert út af Fiskanesi í Grindavík. Hér má lesa nánar um Grindvíking GK 606 en hann var smíðaður árið 1978. 1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmyndir Olgeir Sigurðsson 1994. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Grindvíkingur →

Hrímbakur EA 306

1473. Hrímbakur EA 306 ex Bjarni Herjólfsson ÁR 200. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1991. ÚA togarinn Hrímbakur EA 306 er hér á miðunum árið 1991 en myndina tók Olgeir Sigurðsson. Togarinn hét upphaflega Bjarni Herjólfsson ÁR 200 og var smíðaður í Póllandi árið 1977. Hrímbakur EA 306 var 488 brl. að stærð búinn 2200 hestafla Sulser aðalvél. … Halda áfram að lesa Hrímbakur EA 306 →