262. Ágúst Guðmundsson GK 95 ex Klængur ÁR 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ágúst Guðmundsson GK 95 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hann var heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd. Upphaflega hét báturinn Viðey RE 12 og var smíðuð fyrir Hraðfrystistöðina í Reykjavík. Smíðin fór fram í Noregi og kom báturinn í flotann … Halda áfram að lesa Ágúst Guðmundsson GK 95
Author: Hafþór Hreiðarsson
Stapafell
1545. Stapafell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Olíuskipið Stapafell kemur hér til Húsavíkur um árið, myndi halda 1999. Stapafell var smíðað fyrir SÍS og Olíufélagið hf. í Þýskalandi árið 1979 og var 1532 brl. að stærð. Heimahöfn þess var Keflavík. Stapafell var selt úr landi árið 2001 en þá var það í eigu Olíudreifingar ehf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Stapafell
Brynjólfur farinn í pottinn
1752. Brynjólfur VE 3 ex Flatey ÞH 383. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Brynjólfur VE 3 er nú kominn á endastöð í Belgíu þar sem hann verður rifinn í brotajárn. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd á dögunum þegar Brynjólfur lét úr höfn í Vestmannaeyjum í síðasta skipti. Hér má skoða fleiri myndir af Brynjólfi. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Brynjólfur farinn í pottinn
Skálafell ÁR 50
100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skálafell ÁR 50 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en upphaflega hét báturinn Hoffell SU 80. Báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga árið 1959 í Noregi. Síðar hét hann Fagurey SH 237, Jórunn ÁR 237, Jón Jónsson SH 187, Haförn ÁR 115, Haförn … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50
Vonin KE 10 á Húsavík
1631. Vonin KE 10 ex Lundaberg AK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Vonin frá Keflavík er á Húsavík þessa dagana en Köfunarþjónusta Sigurðar er að vinna við dráttarbrautina í Húsavíkurslipp. Vonin hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður í Bátalóni árið 1982 fyrir Bakkfirðinga. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Vonin KE 10 á Húsavík
Rauðinúpur ÞH 180
1280. Rauðinúpur ÞH 160. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Skuttogarinn Rauðinúpur ÞH 160 kemur hér til hafnar á Raufarhöfn um árið en myndina tók Hreiðar Olgeirsson, þá skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44. Rauðinúpur var smíðaður í Japan árið 1973 og kom til heimahafnar á Raufarhöfn 5. apríl það ár. Hann hét alla tíð Rauðinúpur og heimhöfnin ávallt … Halda áfram að lesa Rauðinúpur ÞH 180
Röstin GK 120
923. Röstin GK 120 ex Freyja GK 364. Ljósmynd Hafþór Hreiðarssson 2005. Röstin GK 120 kemur hér að landi í Sandgerði á vetrarvertíð árið 2005 en báturinn var með heimahöfn í Garðinum. Röstin GK 120 hét áður Freyja GK 364 en upphaflega hét báturinn Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. Hér má lesa nánar um bátinn Með … Halda áfram að lesa Röstin GK 120
Fri Ocean við Bökugarðinn
IMO 9195690. Fri Ocean ex Vera. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Fri Ocean kom til Húsavíkur í vikunni og lagðist að við Bökugarðinn hvar skipað var upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Fri OCean var smíðað í Hollandi árið 2000 og hét Vera fysrtu sex árin en skipið siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Fri Ocean við Bökugarðinn
Knörrinn
306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér Knörrrinn á landleið um árið en hvaða ár man ég ekki, bara að það er langt síðan. Knörrinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Auðunn EA 157 með heimahöfn í Hrísey. Eftir að hafa verið gerður út til fiskveiða í … Halda áfram að lesa Knörrinn
Sigurfari VE 138
1743. Sigurfari VE 138 ex Glomfjord. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurfari VE 138 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum en Tryggvi Sig tók myndina. Sigurfari hét Glomfjord þegar Vestmannaeyingarnir festu kaup á honum frá Svíþjóð árið 1986. Báturinn var smíðaður í Strandby Skibsværft A/S, Strandby í Danmörku árið 1984, og er smíðanúmer 79 hjá stöðinni. Byggt … Halda áfram að lesa Sigurfari VE 138









