2313. Ásdís ÍS 2 ex Örn GK 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér koma myndir af Ásdísi ÍS 2 koma til hafnar á Húsavík nú síðdegis en báturinn hefur verið við rækjurannsóknir á Skjálfanda sl. tvo daga. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður er út af Mýrarholti ehf. og er með heimahöfn í Bolungarvík. … Halda áfram að lesa Fleiri myndir af Ásdísi ÍS 2
Month: febrúar 2023
Ásdís ÍS 2 við bryggju á Húsavík
2313. Ásdís ÍS 2 ex Örn GK 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Ásdís ÍS 2 við bryggju á Húsavík í kvöld en það er langt síðan ég myndaði þennan bát síðast. Þá hét hann reyndar Örn KE 14 frá Keflavík. Ásdís er gerð út af Mýrarholti ehf. og með heimahöfn í Bolungarvík. Um bátinn má lesa … Halda áfram að lesa Ásdís ÍS 2 við bryggju á Húsavík
Sturla á útleið
2444. Sturla GK 12 ex Smáey VE 444. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Togskipið Sturla GK 12 lét úr höfn í Grindavík síðdegis í dag. Það voru SSA 10 metrar og þungur sjór í honum ennþá eftir að síðasta lægð gekk yfir. Ölduduflið sagði ölduhæðina 7,3 metra. Við svona aðstæður er viðbúið að menn fái … Halda áfram að lesa Sturla á útleið
Nýr Dúddi Gísla
2999. Dúddi Gísla GK 48 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Besa ehf. í Grindavík hefur fest kaup á Huldu GK 17 og gefið bátnum nafnið Dúddi Gísla GK 48. Myndina tók Jón Steinar í dag þegar verið var að merkja bátinn. Gamli Dúddi Gísla gekk upp í kaupin á Huldu. Dúddi Gísla … Halda áfram að lesa Nýr Dúddi Gísla
Baldur EA 108
2206. Baldur EA 108 ex Nattoralik. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjutogarinn Baldur EA 108 frá Dalvík sést hér á toginu en Snorri Snorrason útgerðarmaður keypti hann frá Grænlandi haustið 1993. Kom togarinn, sem er 475 brl. að stærð smíðaður í Noregi 1978, kom til heimahafnar á Dalvík skömmu fyrir jól. Baldur var síðar seldur til Ólafsfjarðar … Halda áfram að lesa Baldur EA 108
Þórunn Sveinsdóttir VE 401
1135. Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Þórunn Sveinsdóttir VE 401 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum en hún var smíðu fyrir ÓS hf. í Stálvík í Garðarbæ 1971. Þegar Tryggvi tók þessa mynd hafði tognað dálítið á bátnum og hann yfirbyggður með nýrri brú. Vinnslustöðin kaupir bátinn árið 1992 þegar ný Þórunn Sveinsdóttir … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir VE 401
Það kom togari
1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skuttogarinn Múlaberg SI 22 kom til Húsavíkur síðdegis í dag þeirra erinda að ná í nýtt rækjutroll. Múlaberg, sem er annar svokallaðra tvegga Japanstogaranna sem enn eru í útgerð á Íslandi, er í eigu Ramma hf. í Fjallabyggð. Hinn er Ljósafell SU 70 … Halda áfram að lesa Það kom togari
Rúna RE 150
2462. Rúna RE 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Dragnótabáturinn Rúna RE 150 kemur hér að landi í sinni heimahöfn, Reykjavík, um árið en báturinn var smíðaður í Kína árið 2001. Í janúar árið 2005 fær báturinn nafnið Ósk KE 5 eftir að Útgerðarélagið Ósk ehf. keypti hann af Útgerðarfélaginu Rún sf. Um mitt ár 2006 kaupir … Halda áfram að lesa Rúna RE 150
Guðmundur Guðmundsson ÍS 45
520. Guðmundur Guðmundsson ÍS 45 ex Þytur ÍS 45. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðmundur Guðmundsson ÍS 45, sem hér sést koma að landi í Grindavík árið 1985 eða 6, var smíðaður úr furu og eik á Akureyri árið 1954. Hann var smíðaður í Skipasmíðastöð Nóa Kristjánssonar fyrir Ólaf Jónsson á Vopnafirði sem gaf honum nafnið Hafdís … Halda áfram að lesa Guðmundur Guðmundsson ÍS 45
Stjörnutindur SU 159
1143. Stjörnutindur SU 159 ex Lýtingur NS 250. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjubáturinn Stjörnutindur SU 159 frá Djúpavogi togar hér á rækjuslóðinni um árið. Báturinn hét upphaflega Gissur ÁR 6 á íslenskri skipaskrá og um hann má lesa hér. Báturinn var smíðaður árið 1966 í Noregi en Baldur Karlsson í Þorlákshöfn keypti hann til landsins árið … Halda áfram að lesa Stjörnutindur SU 159









