Sylvía í hvalaskoðun

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér birtist ein mynd af mörgum sem ég tók af hvalaskoðunarbátnum Sylvíu þann 1. október sl. þegar hún eltist við hval undan Húsavíkurhöfða. Gentle Giants gerir Sylvíu út en hún var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 … Halda áfram að lesa Sylvía í hvalaskoðun

Line Charlotte í slipp í Gilleleje

OXWP. Line Charlotte ND 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hin danska Line Charlotte ND 153 sést hér í slipp hjá Brdr. Petersen Gilleleje A/S í október sl. en báturinn var smíðaður hjá Bredgaard boats í Rødbyhavn. Line Charlotte var afhent árið 2018 en sama stöð smíðaði Bárð SH 81 og afhenti árið 2019. Line Charlotte … Halda áfram að lesa Line Charlotte í slipp í Gilleleje

Sæborg og Litlafell

1097. Sæborg ÞH 55 - 1165. Litlafell. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér gefur að líta Sæborgu ÞH 55 koma að landi á Húsavík og í baksýn er Litlafell, olíuskip SÍS og Olíufélagsins hf. að manúera við hafnargarðinn. Um Sæborgina, sem smíðuð var árið 1970 hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri, má lesa hér en Litlafellið … Halda áfram að lesa Sæborg og Litlafell

Saltver kaupir Mars sem fær nafnið Erling

2986. Mars RE 270 ex Sólborg RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Saltver í Reykjanesbæ hefur keypt Mars RE 270 af Útgerðarfélagi Reykjavíkur og mun hann leysa netabátinn Erling KE 140 af hólmi. Mars var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988 og hét áður Sólborg RE 27. Báturinn, sem er 34 metrar … Halda áfram að lesa Saltver kaupir Mars sem fær nafnið Erling