Wilson Newport

IMO: 9430985. Wilson Newport. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Wilson Newport kom upp að Bökugarðinum í morgun en það er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Wilson Newport er 123 metrar að lengd og breidd þess 17 metrar. Skipið mælist 6,118 GT að stærð. Wilson Newport var smíðað árð 2011 og siglir undir fána Möltu … Halda áfram að lesa Wilson Newport

Varðskipið Þór

2769. V/S Þór við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta varðskipið Þór við bryggju á Húsavík en það var smíðað í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og kom til heimahafnar í Reykjavík í október 2011.  Hér má lesa meira um varðskipið Þór og skoða fleiri myndir. Með því að … Halda áfram að lesa Varðskipið Þór

Guðrún Jónsdóttir SI 155 í slipp

1452. Guðrún Jónsdóttir SI 155 ex Þorleifur EA 88. Ljósmynd Pétur Jónasson. Guðrún Jónsdóttir SI 155 frá Siglufirði er hér í slipp á Húsavík en Pétur Jónasson tók myndina. Báturinn hét upphaflega Hrönnn ÞH 275 frá Raufarhöfn og var smíðaður fyrir Þorgeir Hjaltason í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1976. Árið 1982 var báturinn … Halda áfram að lesa Guðrún Jónsdóttir SI 155 í slipp

Volgaborg við Bökugarðinn

IMO 9631072. Volgaborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Volgaborg kom til Húsavíkur fyrir helgi með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Það var frá að hverfa yfir helgina og fór í var inn við Hrísey á Eyjafirði en kom aftur og lagðist að Bökugarðinum snemma í morgun. Volgaborg var smíðað í Hollandi árið 2013 og … Halda áfram að lesa Volgaborg við Bökugarðinn

Skúmur GK 22

1872. Skúmur GK 22. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skúmur GK 22 sést hér á miðunum um árið en hann var í eigu Fiskaness hf. í Grindavík, smíðaður í Ramvik í Svíþjóð 1987. Skúmur, sem var 242 tonn að stærð, var seldur Hafboða hf. í Hafnarfirði árið 1989 og heimahöfnin varð Hafnarfjörður. Skipið var skráð með heimahöfn … Halda áfram að lesa Skúmur GK 22