
Flutningaskipið Volgaborg kom til Húsavíkur fyrir helgi með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka.
Það var frá að hverfa yfir helgina og fór í var inn við Hrísey á Eyjafirði en kom aftur og lagðist að Bökugarðinum snemma í morgun.
Volgaborg var smíðað í Hollandi árið 2013 og er 7,367 GT að stærð. Skipið er 143 metra langt og breidd þess er 16 metrar.
Skipið siglir undir hollensku flaggi með heimahöfn í Delfzijl.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.