
Flutningaskipið Laganborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði hvar skipað verður upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka.
Laganborg var smíðað í Hollandi árið 2008 og er 4,695 GT að stærð. Skipið er 123 metra langt og breidd þess er 14 metrar.
Skipið siglir undir hollensku flaggi með heimahöfn í Delfzijl.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.