
Dragnótabáturinn Bárður SH 81 kom til löndunar á Húsavík síðdegis í dag en hann var við dragnótaveiðar á Skjálfandaflóa.
Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi.
Smíði bátsins fór fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku og er smíðanúmer 135 hjá stöðinni. Hann kom til landsins í nóvembermánuði 2019.
Bárður SH 81 er 26,90 metra langur og 7 metra breiður og mælist 153 brúttótonn að stærð.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution