Vestri BA 63

3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022.

Magnús Jónsson tók þessa mynd í Hafnarfirði í gær en hún sýnir nýja Vestra BA 63 við bryggju.

Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf á Patreksfirði keypti skuttogarann Tobis frá Noregi fyrir skömmu. Tobis, sem fékk nafnið Vestri BA 63, er smíðaður í Danmörku árið 2009 og er 40 metra langur og 580 tonn að stærð.

Vestri er útbúinn til að draga tvö troll og mun fara fyrst á úthafsrækjuveiðar. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd