Sigurborg SH 12

1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011.

Rækjubáturinn Sigurborg SH 12 kemur hér til hafnar á Húsavík í haustbrælu árið 2011.

Sigurborg SH 12 var þá í eigu Soffaníasar Cecilssonar ehf. í Grundarfirði og landaði mikið á Húsavík.

Sigurborg hét upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966 fyrir Múla h/f í Neskaupstað. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd