Siglufjörður 10. ágúst 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sem sýnir hluta Siglufjarðar var tekin 10. ágúst í sumar og það var ansi líflegt við höfnina þann dag. Sem og marga aðra daga sumarsins en á myndinni má sjá að löndun stendur m.a yfir úr Huldu GK 17 og Margréti GK 33. Með því að … Halda áfram að lesa Siglufjörður í sumar
Month: október 2021
Sighvatur GK 57
975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sighvatur GK 57 lætur hér úr höfn í Grindavík um árið, þarna var búið að skutlengja bátinn og skipta um brú frá því að þessi mynd var tekin. Sighvatur, sem gerður var út af Vísi hf., var einn 18 báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57
Imke kom í dag
IMO 9341756. Imke leggst að Bökugarðinum í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Imke kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Þetta er þriðja skipið sem kemur með hráefni fyrir PCC í þessari viku en Wilson Nantes lét úr höfn í dag og Imke kom inn í beinu framhaldi af því. Imke … Halda áfram að lesa Imke kom í dag
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það er nokkuð um liðið síðan Jökull ÞH 299 hefur birst hér á síðunni og því tilvalið að mynda hann í dag en hann var eitthvað að snúast framan við höfnina á Húsavík. Línu- og netaskipið Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Rurik kom með farm fyrir PCC
IMO 9375795. Rurik ex Rorichmoor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Rurik kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Rurik siglir undir fána Antiqua og Barbadoseyja. Heimahöfn skipsins, sem smíðað var 2006, er Saint John’s. Skipið er 80 metra langt og 12 metra breitt. Það … Halda áfram að lesa Rurik kom með farm fyrir PCC
Sæunn í fjárflutningum
7158. Sæunn ÞH 22 ex Þyrí. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin sl. laugardag þegar Sæunn ÞH 22 kom til hafnar á Húsavík með lömb sem höfðu haft sumarbeit í Lundey á Skjálfanda. Hér má sjá aðra mynd frá þessum fjárflutningum. Sæunn er í eigu Sævars Guðbrandssonar og er af Sómagerð. Hét áður Þyrí … Halda áfram að lesa Sæunn í fjárflutningum
Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 var á siglingu til nýrrar heimahafnar í vikunni lá Jón Steinar fyrir henni og sendi drónann út þegar hún var að sigla í gegnum Reykjanesröstina. Og að sjálfsögðu var tekin hringur fyrir kappann og hér sjáum … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni
Sólrún og Sævar
2706. Sólrún EA 151 - 2378. Sævar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér liggja línubáturinn Sólrún EA 151 og Hríseyjarferjan Sævar við bryggju á Árskógssandi en myndin var tekin í sumar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher … Halda áfram að lesa Sólrún og Sævar
Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Nýtt skip bættist í flota Vísis hf. síðdegis í dag þegar skuttogarinn Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til heimahafnar í Grindavík. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum í sumar þar sem hann bar nafnið Bergur VE 44. Togarinn, sem hét upphaflega Westro, … Halda áfram að lesa Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag
Þórir í Reykjavíkurhöfn
91. Þórir SF 77 ex Helga RE 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórir frá Hornafirði er hér í Reykjavíkurhöfn um árið, annað hvort að fara upp í slipp eða koma niður. Þinganes ehf. keypti Þóri SF 77 af Ingimundi h.f í Reykjavík en hann hét Helga RE 49 og var mikið aflaskip. Þórir var smíðaður í … Halda áfram að lesa Þórir í Reykjavíkurhöfn









