Ársæll EA 74 á grásleppuveiðum á Skjálfandaflóa

403. Ársæll EA 74 ex Farsæll EA 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessari mynd er Ársæll EA 74 við grásleppuveiðar á Skjálfandaflóa á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar. Ársæll EA 74 var í eigu Jóhannesar Jónssonar frá Flatey, búsettur á Akureyri. Hann keypti bátinn árið 1976 frá Hrísey. Jóhannes átti bátinn til ársins 1991 … Halda áfram að lesa Ársæll EA 74 á grásleppuveiðum á Skjálfandaflóa →

Hav Scandik og Hav Saga á Dalvík

Hav Scandik við bryggju á Dalvík 23. febrúar 2019. Ljósmynd Haukur Sigtryggur. Flutningaskipin Hav Scandik og Hav Saga hafa komið til Dalvíkur með skömmu millibili til að sækja hey fyrir Norðmenn. Hav Scandik kom þann 23 febrúar en Hav Saga var að lesta þar í dag. Hav Scandik var smíðað 1990 og er 74,62 metra … Halda áfram að lesa Hav Scandik og Hav Saga á Dalvík →

Newfound Pioneer í klassaskoðun hjá Slippnum Akureyri.

Newfound Pioneer við Slippkantinn á Akureyri. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Kanadíski rækjutogarinn Newfound Pioneer, sem er í eigu Newfound Rescources, hefur nú verið í slipp á Akureyri í rúman mánuð.  Newfound Pioneer var eitt sinn í eigu ÚA og hét Svalbakur EA 2. Á heimasíðu Slippsins á Akureyri segir að skipið sé í hefbundinni klassaskoðun … Halda áfram að lesa Newfound Pioneer í klassaskoðun hjá Slippnum Akureyri. →

Gunnar Langva á Skjálfandaflóa í febrúar 2018

Gunnar Langva M-139-A. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Á þessari mynd er norska uppsjávarveiðiskipið Gunnar Langva við loðnuveiðar á Skjálfanda þann 18. febrúar árið 2018. Gunnar Langva er 75 metrar á lengd og 14 metrar á breidd, mælist 2.223 GT að stærð. Smíðaður 2003 og heimahöfn í Álasundi. Útgerð Gunnars Langva, Gunnar Langva A/S á von … Halda áfram að lesa Gunnar Langva á Skjálfandaflóa í febrúar 2018 →

Sigurður VE 15 á útleið

2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Sigurður VE 15 lét úr höfn í Vestmannaeyjum undir kvöld og náði Hólmgeir Austfjörð þessum myndum af honum. Íslensku kolmunnaveiðiskipin hafa verið að veiðum á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi og því löng sigling framundan hjá þeim á Sigurði. 2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15 á útleið →