Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord

Bjørkåsbuen F-8-BD. Ljósmynd Trefjar 2019. Á dögunum afhenti Bátasmiðjan Trefjar nýjan Cleopatrabát, Bjørkåsbuen F-8-BD,til Båtsfjord í Noregi. Kaupandi bátsins er Jens-Einar Bjørkås Johnsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Bjørkåsbuen er af gerðinni Cleopatra 36, 11 metra langur og mælist 14 brúttótonn að stærð.  Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hö tengd ZF V-gír. Báturinn … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord →

Selfoss og Felix á Skjálfanda

IMO 9433456. Selfoss (fjær) og IMO 9180877. Felix á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Selfoss kom til Húsavíkur í dag en skömmu áður hafði flutningaskipið Felix sem legið hafði við Bökugarðinn farið frá og lagst við akkeri. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langur, og siglir undir færeyskum fána. Eimskip keypti skipið, sem … Halda áfram að lesa Selfoss og Felix á Skjálfanda →

Felix við Bökugarðinn

IMO 9180877. Felix við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Felix kom til Húsavíkur í morgun og lagðist við Bökugarðinn. Felix, sem siglir eins og áður segir undir hollensku flaggi, kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 1999 og er heimahöfn þess í Groningen. Lengd skipsins er 111 metrar og … Halda áfram að lesa Felix við Bökugarðinn →

Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í dag

2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Hinn nýi Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í dag en þaðan verður hann gerður út þó heimahöfnin sé Grenivík. Vörður er annað skipið sem kemur til landsins í röð sjö raðsmíðaskipa sem ís­lensk út­gerðarfyr­ir­tæki sömdu um smíði á við Vard skipasmíðastöðina. Vard rek­ur m.a. skipa­smíðastöðvar í … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í dag →

Bergey VE 144 í prufusiglingu

2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson 2019. Eins og mörgum er kunnugt er ný Bergey VE 144 í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að gert sé ráð fyrir að skipið verði afhent kaupanda hinn 1. október nk. Þessa dagana hefur skipið verið í … Halda áfram að lesa Bergey VE 144 í prufusiglingu →

Garðar kemur að bryggju í dag

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar kemur hér að bryggju í haustblíðunni í dag. Upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2006 og gerði upp til siglinga … Halda áfram að lesa Garðar kemur að bryggju í dag →

Sigurvin SH 119

1201. Sigurvin SH 119 ex Gæfa GK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Eikarbáturinn Sigurvin SH 119 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíðinni árið 2005. Sigurvin SH 119 hét upphaflega Guðbjörg RE 21 eins og lesa má um hér en báturinn var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands á Fáskrúðsfirði. Sigurvin, sem síðar varð GK 119, … Halda áfram að lesa Sigurvin SH 119 →

Eros M-29-HØ

IMO 9617973. Eros M-29-HØ. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Hið glæsilega norska uppsjávarveiðiskipið Eros M-29-HØ kom til Keflavíkur á dögunum hverra erinda mér er ekki kunnungt. Elvar Jósefsson tók þessar myndir þega skipið lét úr höfn. Eros M-29-HØ er 77 metrar að lengd, 16 metra breitt og mælist 4,027 GT að stærð. Skipið var smíðað árið … Halda áfram að lesa Eros M-29-HØ →

Ræða sameiningu Vísis og Þorbjarnarins

1416. Sighvatur GK 57 línuskip Vísis hf. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna Vísis hf. og Þorbjarnar hf. hafa hafið viðræður um að leggja eignir félaganna inn í nýtt fyrirtæki og standa saman að rekstri nýs sjávarútvegsfyrirtækis í Grindavík.  Í tilkynningu segir að Vísir og Þorbjörn séu rótgróin og öflug sjávarútvegsfyrirtæki, svipuð að stærð og … Halda áfram að lesa Ræða sameiningu Vísis og Þorbjarnarins →