Eskja selur Hafdísi SU 220

2400. Hafdís SU 220 ex Hafdís GK 118. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Útgerðarfélagið Eskja hf. á Eskifirði hefur selt Nesveri ehf. á Rifi línubátinn Hafdísi SU 220. Austurfrétt greinir frá þessu og þar segir að gengið hafi verið frá kaupunum í byrjun september. Hafdís er er 29,7 BT að stærð, smíðaður árið 1999 og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Eskja selur Hafdísi SU 220 →

Bergey VE afhent Bergi-Hugin í dag

2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson 2019. Í dag var ný Bergey VE afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, í Aukra í Noregi.  Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar hf. Bergey er eitt af sjö skipum sem skipasmíðastöðin Vard smíðar fyrir íslensk fyrirtæki og er hún systurskip Vestmannaeyjar VE sem afhent var Bergi-Hugin í … Halda áfram að lesa Bergey VE afhent Bergi-Hugin í dag →

BBC Lagos kom til Húsavíkur í dag

IMO 9570668. BBC Lagos. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið BBC Lagos sigldi inn Skjálfandann í veðurblíðu dagsins og lagðist að Norðurgarðinum á Húsavík. Þar biðu skipsins vinnubúðir sem skipa á um borð í það. BBC Lagos var smíðað í Kína árið 2012 og er 7,138 GT að stærð. Lengd þess er 131 metrar en breiddin … Halda áfram að lesa BBC Lagos kom til Húsavíkur í dag →

Sigurborg og Farsæll komu til Grundarfjarðar í gær

2740. Sigurborg SH 12 ex Vörður EA 48. Ljósmynd Alfons Finnsson 2019. Það var hátíðisdagur á Grundarfirði í gær þegar Sigurborg SH 12 og Farsæll SH 30 komu til heimahafnar í fyrsta skipti. Soffanías Cecilsson ehf., dótturfélag FISK Seafood hf., er eigandi að Sigurborginni en FISK Seafood hf. Farsæli. Skipin leysa af hólmi eldri skip … Halda áfram að lesa Sigurborg og Farsæll komu til Grundarfjarðar í gær →

Hafborg EA 152 kemur að landi

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Hafborg EA 152 kemur hér að landi á Húsavík sl. fimmtudag. Hafborgin hefur verið að veiðum á Skjálfandaflóa undanfarið og fiskað vel líkt og Haförn ÞH 26 sem einnig er á dragnótaveiðum. Hafborg er 25,95 metra löng og átta metra breið, búin til veiða með net og … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152 kemur að landi →

Vörður ÞH 44 kemur til Hafnarfjarðar

2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Óskar Franz tók þessa mynd af Verði ÞH 44 þegar hann kom til Hafnarfjarðar í vikunni. Eins og komið hefur fram á síðunni kom Vörður ÞH 44 til landsins sl. miðvikudag eftir heimsiglingu frá Noregi. Í Hafnarfirði verður settur vinnslubúnaður í Vörð og er ráðgert að það … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 kemur til Hafnarfjarðar →

Runólfur SH 135

1408. Runólfur SH 135. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Hér liggur skuttogarinn Runólfur SH 135 við bryggju á Grundarfirði sumarið 1986. Runólfur SH 135, sem var fyrsti skuttogarinn við Breiðafjörð, var smíðaður í Stálvík hf. í Garðabæ og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar á Grundarfirði snemma árs 1975. Togarinn, sem var 312 brl. að … Halda áfram að lesa Runólfur SH 135 →

Virginiaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld

IMO 9234290. Virginiaborg og Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Virginiaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld og tók Sleipnir á móti því. Virginiaborg kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka og lagðist að Bökugarðinum en rétt áður hafði Felix lagt úr höfn. Virginiaborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa Virginiaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld →