Hafrafell SU 65 í slipp á Akureyri

2912. Hafrafell SU 65 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Hafrafell SU 65 hefur verið í slipp á Akureyri að undanförnu og var þessi mynd tekin í gær. Báturinn, sem er í eigu Háuaxlar ehf. á Fáskrúðsfirði, hét upphaflega Oddur á Nesi SI 76 og var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri fyrir … Halda áfram að lesa Hafrafell SU 65 í slipp á Akureyri →

Bíldsey SH 65 kemur að landi á Siglufirði

2704. Bíldsey SH 95 kemur að landi á Siglufirði í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Bíldsey SH 65 bíður hér þess að komast undir löndunarkranann á Siglufirði í dag. Bíldsey SH 65 hét upphaflega Konni Júl GK 704 og var smíðaður hjá Seiglu í Reykjavík árið 2006. Eigandi Hviða ehf. og heimahöfnin Garður. Árið … Halda áfram að lesa Bíldsey SH 65 kemur að landi á Siglufirði →

Tjaldur lét úr höfn á Siglufirði í dag

2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línuskipið Tjaldur SH 270 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hann lét úr höfn undir stjórn Vigfúsar Markússonar. 2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. "Tjaldur er 42,9 metra langur og var skrokkur bátsins er smíðaður í Salthammer Båtbyggeri í Noregi, … Halda áfram að lesa Tjaldur lét úr höfn á Siglufirði í dag →

Vancouverborg við Bökugarðinn

IMO 9213741. Vancouverborg við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hollenska flutningaskipið Vancouverborg kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Vancouverborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að tærð. Lengdin er 132 metrar og … Halda áfram að lesa Vancouverborg við Bökugarðinn →

Herjólfur hinn nýi

2941. Herjólfur. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í dag þegar Herjólfur kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Þetta eru fyrstu myndirnar sem birtast af þessu skipi hér á síðunni og kominn tími til því hann kom til landsins í júní sl. Herjólfur er 3,270 BT að stærð og skráð lengd hans er … Halda áfram að lesa Herjólfur hinn nýi →

Northguider H-177-AV

Northguider H-177-AV ásamt björgunarskipum við Svalbarða í dag. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking sendi síðunni þessa mynd sem hann tók við Hinlopen á Svalbarða í dag. Hún sýnir rækjutogarann Northguider H-177-AV sem strandaði í lok síðasta árs ásamt björgunarskipum. Þau eru sjö talsins en Eiríkur segir öllu hafi verið tjaldað til … Halda áfram að lesa Northguider H-177-AV →