
Dragnótabáturinn Hafborg EA 152 kemur hér að landi á Húsavík sl. fimmtudag.
Hafborgin hefur verið að veiðum á Skjálfandaflóa undanfarið og fiskað vel líkt og Haförn ÞH 26 sem einnig er á dragnótaveiðum.
Hafborg er 25,95 metra löng og átta metra breið, búin til veiða með net og dragnót.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.