Keifaberg RE 70 á toginu

1360. Kleifaberg RE 70 ex Kleifaberg RE 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér er Kleifaberg RE 70, frystitogari Útgerðarfélags Reykjavíkur hf, að veiðum fyrir skömmu. Kleifaberg RE 70 hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið 1974. Togarinn var 742 brl. að stærð en mælist í dag 839 brl. … Halda áfram að lesa Keifaberg RE 70 á toginu

Tómas Þorvaldsson GK 10

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir sl. fimmtudag þegar frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 lagði upp í sína fyrstu veiðiferð frá Hafnarfirði fyrir Þorbjörn h.f í Grindavík. 2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þorbjörn hf. fékk … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10

Tómas Þorvaldsson GK 10 á Halanum

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR-6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Tómas Þorvaldsson GK 1o er í sinni fyrstu veiðiferð og tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 þessa mynd í þokusuddanum á Halanum í dag. Tómas Þorvaldsson GK 10 hét áður Sisimiut GR6-500 en upphaflega er um að ræða togara … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10 á Halanum

Veronica B og Beatriz B í Randes

Veronica B - Beatriz B við kajann í Randes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipin Veronica B og Beatriz B liggja við bryggju í Randes í Vigoflóanum innanverðum. Og hafa legið lengi sýnist mér en skipin eru 14, 016 GT að stærð. 160 metra löng og 25 metra breið. Smíðuð 2007. Þau voru færð þarna inneftir … Halda áfram að lesa Veronica B og Beatriz B í Randes

Jósef Geir ÁR 36

1266. Jósef Geir ÁR 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jósef Geir ÁR 36, sem hér sést í slipp í Hafnarfirði, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972. Jósef Geir ÁR 36 var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri.  Jósef Geir … Halda áfram að lesa Jósef Geir ÁR 36

Galicia við festar

IMO 9268409. Galicia við festar á Vigoflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Bílaflutningaskipið Galicia liggur hér við festar á Vigoflóa, nánar tiltekið skamt undan Cíeseyjunum. Þetta skip var smíðað árið 2003 og mælist 16,361 GT að stærð. Siglir undir spænsku flaggi með heimahöfn í Santa Cruz á Teneríf. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Galicia við festar