Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

1028. Hrafn Sveinbjarnarsonn GK 255. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 var smíðaður árið 1967 fyrir Þorbjörn hf. í Grindavík. Einn 18 báta sem smíðaðir voru í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í Austur Þýskalandi.  Í 4 tbl. Faxa sem kom út 4. apríl 1967 sagði svo frá komu bátsins til landsins: Á skírdag kom … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 →

Freyja GK 364

923. Freyja GK 364 ex Kolbrún ÍS 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Séníverinn var eitt sinn gulur og hét Freyja GK 364 með heimahöfn í Garðinum. Eigandi Halldór Þórðarson sem gjarnan var nefndur Dóri á Freyjunni. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. Báturinn … Halda áfram að lesa Freyja GK 364 →

Pétur Jacob SH 37

1227. Pétur Jacob SH 37 ex Þrái HF 127. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Pétur Jacob SH 37, sem hér sést koma að landi í Ólafsvík, hét upphaflega Þytur NS 22 og var smíðaður árið 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn sem var tæplega 12 brl.. að stærð var smíðaður fyrir Þyt h/f á … Halda áfram að lesa Pétur Jacob SH 37 →

Við bryggju í Bermeo í Baskalandi

IMO: 8737556. Izurdia Maitea. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Á ferð okkar um Baskaland sl. sumar áðum við um stund í hafnarbænum Bermeo og þá tók ég þessa mynd af fiskibátnum Izurdia Maitea sem lá þar við bryggju. Báturinn var smíðaður árið 1998 hjá Astilleros Cardama, S.A. í Vigo og er 107 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa Við bryggju í Bermeo í Baskalandi →

Páll Jónsson lét úr höfn í dag

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Konungur línuveiðaranna, eins og Jón Steinar kallar hann, Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík um kaffileytið í dag. Hann kom úr stuttum prufutúr sl. fimmtudag og meðan að óveðrið gekk yfir var tíminn nýttur í að laga og betrumbæta ýmislegt smálegt sem menn … Halda áfram að lesa Páll Jónsson lét úr höfn í dag →

Ísfirðingar á Húsavík

1148. Bára ÍS 66 - 1787. Stundvís ÍS 883. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það bar við á Húsavík sumarið 1993, ef ég man rétt, að bátar frá Ísafirði lönduðu úthafsrækju á Húsavík. Þá er ég að tala um báta af minni gerðinni sem hétu Bára ÍS 66, Stundvís ÍS 883 og Halldór Sigurðsson ÍS 14. Bára … Halda áfram að lesa Ísfirðingar á Húsavík →

Kristey ÞH 25

1420. Kristey ÞH 25 ex Kristbjörg ÞH 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristey ÞH 25 kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hún hefur verið á dragnótaveiðum þegar myndirnar voru teknar. Báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og hét Kristbjörg ÞH 44.  Báturinn var seldur Höfða h/f … Halda áfram að lesa Kristey ÞH 25 →