Bjarni og Árni við Háabakka

2350. Árni Friðriksson RE 200 kemur að bryggju í morgun. Ljósmynd Magnús Jónsson. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 200 kom til Hafnarfjarðar í morgun og lagðist að Háabakka við Fornubúðir. Við Hábakka lá fyrir Bjarni Sæmundsson RE 30 en hann kom til hafnar í gærkveldi en bæði skipin voru að koma úr hinu árlega marsralli Hafrannsóknarstofnunar. … Halda áfram að lesa Bjarni og Árni við Háabakka →

Álaborg ÁR 25

1359. Álaborg ÁR 25 ex Sólborg SH 207. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Nú birtast nokkar myndir af vertíðarbátnum Álaborg ÁR 25 koma til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 2005. Nánar tiltekið þann 3. mars. Það var Fiskisver ehf. sem gerði Álaborg út en hún var með heimahöfn á Eyrarbakka. Báturinn var smíðaður á Ísfirði … Halda áfram að lesa Álaborg ÁR 25 →

Pálína Þórunn á toginu

2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson skipverji á Ljósafellinu SU tók þessa mynd á dögunum af togskipinu Pálínu Þórunni GK 49 frá Sandgerði. Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en eins og margir vita keypti Nesfiskur hf. hana af Skinney-Þinganesi hf. í fyrra. … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn á toginu →

Maggý á landleið í dag

1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð tók þessa myndasyrpu í dag af Maggý VE 108 koma til hafnar í Vestmannaeyjum. Báturinn, sem gerður er út af Narfa ehf., stundar veiðar með dargnót og hefur fiskað vel að undanförnu. Upphaflega hét báturinn Skálavík SH 208 eins og kom … Halda áfram að lesa Maggý á landleið í dag →

Katrín orðin blá – Myndasyrpa

1890. Katrín GK 266 ex Una GK 266. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línubátur Stakkavíkur ehf., Katrín GK 266, var í skveringu í Njarðvík um daginn og kom blá út úr henni. Jón Steinar tók þessa myndasyrpur af Katrínu GK 266 í gær er hún kom til hafnar í Grindavík. Það brimaði aðeins þegar að hæg norðanáttin … Halda áfram að lesa Katrín orðin blá – Myndasyrpa →

Vlieborg lagðist að Bökugarðinum í dag

IMO 9554781. Vlieborg við komuna til Húsavíkur í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hollenska flutningaskipið Vlieborg kom að Bökugarðinum í dag en skipið hefur legið fyrir festum á Skjálfanda undanfarna sólahringa. Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka, var smíðað árið 2012. Það er 142.65 metra langt og breidd þess er 15.87 metrar. Það … Halda áfram að lesa Vlieborg lagðist að Bökugarðinum í dag →

Finndu fimm breytingar 2

2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það virðist sem einhverjum hafi fundist þessi leikur í gær skemmtilegur og því best að henda í annan leik sem felst í því að finna fimm breytingar á þessum tveim myndum. 2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Koma má með lausnirnar í athugasemdarkerfinu hér að … Halda áfram að lesa Finndu fimm breytingar 2 →