Björn Hólmsteinsson ÞH 164

2641. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 ex Sæborg SU 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 sést hér á þessum myndum koma til hafnar á Raufarhöfn í dag en hann er á grásleppunetum þessa dagana. Það er Hólmsteinn Helgason ehf. sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti bátinn til Raufarhafnar í ársbyrjun 2014 en … Halda áfram að lesa Björn Hólmsteinsson ÞH 164 →

Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana

Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann á Húsavík þessa dagana og ekki amalegt að kíkja á bryggjuna í vorblíðunni líkt og í dag. Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505 komu að landi á sama tíma en Guðmundur A. Hólmgeirsson gerir Aron … Halda áfram að lesa Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana →

Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði

TFXY. Skarðsvík SH 205. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Hér liggur Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði, vel hlaðin af síld. Myndina tók Hannes Baldvinsson. Skarðsvík þessi átti sér ekki langa sögu, var smíðuð 1960 í Danmörku fyrir Sigurð Kristjónsson ofl. en eigandi frá 8. maí 1961 var Skarðsvík h/f á Rifi á Snæfellsnesi. Skarðsvík var 86 brl. að … Halda áfram að lesa Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði →

Anna EA 305 við bryggju á Akureyri.

2870. Anna EA 305 ex Carimsa Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línu- og netaskipið Anna EA 305 liggur hér við bryggju og bíður þess sem verða vill, hvað svo sem það verður. Myndin var tekin í gær. Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er 52. metrar að lengd, 11 … Halda áfram að lesa Anna EA 305 við bryggju á Akureyri. →

Wilson Cork kom með áburð

IMO 9178460. Wilson Cork. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Cork kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Norðurgarðinum þar sem skipað verður upp áburði. Wilson Cork siglir undir fána Barbadoseyja og er með heimahöfn í Bridgetown. Skipið, sem er 99,9 metrar að lengd og 12,8 metra breitt, mælist 2,999 brúttótonn að stærð. Það … Halda áfram að lesa Wilson Cork kom með áburð →

Loðnulöndun í Grindavík

Keflvíkingur KE 100 við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson 1973. Hér koma myndir frá loðnulöndun úr Keflvíkingi KE 100 í Grindavík árið 1973, að ég tel. Myndirnar voru teknar í sama skipti og myndirnar af nótaviðgerðinni sem birtust um daginn. Myndirnar tók Gunnar Hallgrímsson frá Sultum í Kelduhverfi en hann var skipverji á Keflvíkingi. … Halda áfram að lesa Loðnulöndun í Grindavík →