Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi

500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 liggur hér við flotbryggjuna á Hauganesi í gær og einnig má sjá Níels Jónsson EA 106. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi

Til hamingju með daginn sjómenn

2618. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Birkeland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Með þessari mynd sem sýnir Björgu Jónsdóttur ÞH 321 á skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2005 sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn

Víðir EA 423

7758. Víðir EA 423. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Þessar myndir af strandveiðibátnum Víði EA 423 frá Akureyri voru teknar á Siglufirði sumarið 2015. Víðir EA 423, sem er Sómi 870 og rúmar 6 brl. að stærð. Skrokkur bátsins og stýrishús var steypt hjá Bátasmiðjunni Bláfelli í Reykjanesbæ en á vefnun aba.is segir að eigendur hans … Halda áfram að lesa Víðir EA 423

Skonnortan Ópal á Skjálfandaflóa

2851. Ópal á Skjálfandaflóa í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skonnortan Ópal kom til Húsavíkur í kvöld og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Skipið var smíðað af skipasmíðastöðinni Bodenwerft í Damgarten, Þýskalandi árið 1951 sem togari og var við veiðar á Eystrarsalti, í Norðursjó og Barentshafi.  Á 8 árum (1973-1981) var Ópal breytt í … Halda áfram að lesa Skonnortan Ópal á Skjálfandaflóa