Þórsnes SH 109

967. Þórsnes SH 109 ex Marta Ágústsdóttir GK 14. Ljósmynd Vigfús Markússon. Á þessari mynd úr safni Vigfúsar Markússonar gefur að líta Þórsnes SH 109 draga netin. Upphaflega hét Þórsnesið Keflvíkingur KE 100 og var smíðað árið 1964 í Boizenburg í A-Þýskalandi. Þórsnes fór í brotajárn árið 2017, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu. Með því að … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109 →

Iða jólaljósum prýdd

1432. Iða ÞH 321 ex Von ÞH 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta Iðu ÞH 321 prýdda jólaljósum í Húsavíkurhöfn. Iða hét áður Von ÞH 54 og var smíðuð í Neskaupstað árið 1975. Báturinn er  6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Iða jólaljósum prýdd →

Ásbjörg ST 9

1487. Ásbjörg ST 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásbjörg ST 9 var síðasti eikarbáturinn af þessari stærð sem Skipavík í Stykkilshólmi smíðaði. Hún var afhent árið 1977 og átti heimahöfn á Hólmavík. Í 15. tbl. Ægis 1977 sagði m.a: 1. júlí sl. afhenti Skipasmíðastöðin Skipavík h.f. í Stykkishólmi nýtt 47 rúmlesta eikarfiskiskip, sem er nýsmíði nr. … Halda áfram að lesa Ásbjörg ST 9 →

Doggerbank á Skjálfanda

IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Doggersbank siglir hér út Skjálfandaflóa í gær eftir að hafa losað hráefnisfarm til PCC á Bakka. Það birtist kvöldmynd af skipinu við Bökugarðinn hér á síðunni í fyrradag og með henni þessar upplýsingar: Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er … Halda áfram að lesa Doggerbank á Skjálfanda →

Ginneton kom til Eyja í dag

IMO 9350628. Ginneton GG 203 ex Ceton. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2021. Nýtt uppsjávarskip í flota Ísfélags Vestmannaeyja, Ginneton GG 203, kom til Vestmannaeyja um hádegisbil í dag Á Fésbókarsíðu Ísfélagsins segir að strax verði hafist handa við að læra á skipið og skrá það í íslenska skipaskrá. Skipið fær nafnið Suðurey VE 11 með skipaskrárnúmer … Halda áfram að lesa Ginneton kom til Eyja í dag →

Doggersbank við Bökugarðinn

IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Doggersbank kom til Húsavíkur á áttunda tímanum í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Þar er nú verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka en myndin af skipinu var tekin síðdegis í dag.  Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Doggersbank við Bökugarðinn →

Gunnar SU 139

73. Gunnar SU 139. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Gunnar SU 139 var einn tappatogaranna sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í A-Þýskalandi á árunum 1958-1959, nánar tiltekið í Stralsund. Í Tímanum 14. júní 1959 sagði svo frá komu Gunnars SU 139: Snemma í morgun lagðist vélskipið "Gunnar" SU-139 að bryggju á Reyðarfirði. Var skipið allt fánum … Halda áfram að lesa Gunnar SU 139 →