Fram

IMO 9370018. Fram. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Norska skemmtiferðaskipið Fram kom til Húsavíkur gær og lét síðan aftur úr höfn nú síðdegis. Fram, sem flokkast leiðangursskip, er gert út af fyrirtækinu Hurtigruten og er með heimahöfn í Tromsö. Skipið heitir eftir skipi landkönnuðanna norsku Roald Amundsen og Fridtjof Nansen. Fram var smíðað í Ítalíu árið … Halda áfram að lesa Fram →

Áskell Egilsson á pollinum

1414. Áskell Egilsson ex Ási ÞH 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hvalaskoðunarbáturinn Áskell Egilsson kemur hér að landi á Akureyri í dag en ekki viðraði vel til hvalaskoðunar á Eyjafirði né Skjálfanda. Upphaflega Vöttur SU 3 smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1975. Vöttur SU 3 hét síðar Vinur EA 80, Aðalbjörg II RE … Halda áfram að lesa Áskell Egilsson á pollinum →

C Jane GR 6 – 287 kom við í Grindavík

OZAK. C Jane GR 6 - 287 við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. C Jane GR 6 - 287, nýr grænlenskur fiskibátur með heimahöfn í Nuuk, kom til Grindavíkur í gær á heimleið sinni frá Danmörku þar sem han var smíðaður. Báturinn var smíðaður hjá Bredgaard boats í Rødbyhavn í Danmörku og … Halda áfram að lesa C Jane GR 6 – 287 kom við í Grindavík →

Kristbjörg og kappróðrasveitin

Kappróðrarsveit Kristbjargar og Kristbjargar II á Sjómannadaginn 1977. Ljósmynd Pétur Jónasson. Á þessum myndum úr myndasafni Péturs Jónassonar ljósmyndara gefur að líta Kristbjörgu ÞH 44 á Sjómannadaginn 1977. Henni fylgja myndir af kappróðrasveit að ég tel, og er um sameiginlega sveit af bátum Korra hf, Kristbjörgu ÞH 44 og Kristbjörgu II ÞH 244. Auk þes … Halda áfram að lesa Kristbjörg og kappróðrasveitin →

Álsey á Þórshöfn

3000. Álsey VE 2 ex Hardhaus H-120-AV. Ljósmynd Valdimar Halldórsson 2022. Álsey VE 2, skip Ísfélags Vestmannaeyja, kom með makrílfarm til Þórshafnar á Langanesi í gærmorgun. Álsey VE 2 hét áður Hardhaus H-120-AV en Ísfélag Vestmannaeyja hf. keypti það frá Noregi og kom það til landsins í febrúar sl. Skipið sem smíðað var árið 2003 … Halda áfram að lesa Álsey á Þórshöfn →

Sigurður og Heimaey landa makríl á Þórshöfn

2883. Sigurður VE 15 - 2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Valdimar Halldórsson 2022. Mikið líf er nú í uppsjávarvinnslu Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn og margir sem komið hafa til vinnu síðustu daga. Vinnsla úr fyrsta makrílfarmi sumarsins úr Sigurði VE 15 hófst að morgni 27. júlí og Heimaey VE 1 kom til hafnar 29. júlí. … Halda áfram að lesa Sigurður og Heimaey landa makríl á Þórshöfn →

Le Bellot á Skjálfanda

IMO 9852418. Le Bellot á Skjálfanda í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skemmtiferðaskipið Le Bellot hafði viðdvöl framundan Húsavíkurhöfn í dag og voru farþegar þess selfluttir í land. Le Bellot var afhent PONANT skipafélaginu árið 2020 en það á sér nokkur systurskip, m.a Le Bougainville. Skipið er 132 metrar að lengd og 18 metra breitt. Það mælist 9,988 … Halda áfram að lesa Le Bellot á Skjálfanda →