1076. Jóhanna BA ex Jóhanna Gísladóttir GK 557. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hér gefur að líta Jóhönnu BA á siglingu í dag en hún þjónustar fiskeldið á Vestfjörðum og gerð út af Skeggja ehf. á Bíldudal. Jóhanna hét upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77 var smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð … Halda áfram að lesa Jóhanna
Einar Guðnason ÍS 303
2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Línubáturinn Einar Guðnason ÍS 303 kemur hér úr róðri í dag en hann er gerður út frá Suðureyri við Súgandafjörð. Það er Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. sem gerir Einar Guðnason út en hann kom í stað eldri báts sem strandaði við Gölt síðla árs 2019. Báturinn var … Halda áfram að lesa Einar Guðnason ÍS 303
Ásgeir og Mardís
11790. Ásgeir ÞH 198 - 6425. Mardís ÞH 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það er vorbragur í þessari mynd sem tekin var í lok grásleppuvertíðar á Húsavík upp úr aldamótunum síðustu. Þarna eru kallarnir á Ásgeir ÞH 198 að draga netin upp á bryggju og Mardísin liggur utan á honum. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Ásgeir og Mardís
Egill ÍS 77
2340. Egill ÍS 77 ex Ásdís ÍS 402. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Dragnótabáturinn Egill ÍS 77 baðar hér sig í kvöldsólinni á Þingeyri við Dýrafjörð sem er hans heimahöfn. Egill ÍS 77 hét upphaflega Friðrik Bergmann SH 240 frá Ólafsvík og var smíðaður í Ósey í Hafnarfirði árið 1999. Hann var skutlengdur árið 2008. Báturinn … Halda áfram að lesa Egill ÍS 77
Óli Hall HU 14
67. Óli Hall HU 14 ex Hafberg GK 377. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Rækjubáturinn Óli Hall HU 14 kemur hér að landi á Húsavík í júnímánuði árið 2007 en það þurfti að setja trollið upp á bryggju til viðgerðar. Báturinn, sem smíðaður var fyrir Gunnvöru hf. í Noregi 1962, hét upphaflega Guðrún Jónsdóttir ÍS 267 frá Ísafirði … Halda áfram að lesa Óli Hall HU 14
Brimill
1344. Brimill HU 18 ex Svanur HU 18. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Farþegabáturinn Brimill hét upphaflega Grímsey ST 2 og var smíðaður árið 1973 hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum. Báturinn var smíðaður fyrir Friðgeir Höskuldsson og Sigurð P. Einarsson á Drangsnesi. Árið 1981 var báturinn kominn til Ísafjarðar þar sem hann fékk nafnið Gissur Hvíti ÍS … Halda áfram að lesa Brimill
Össur og Svalur
6651. Össur ÞH 242 - 6816. Svalur EA 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma grásleppubátarnir Össur ÞH 242 og Svalur EA 22 úr Hrísey til hafnar á Húsavík vorið 2003 að mig minnir. Össur ÞH 242 var smíðaður árið 1980 í Bátasmiðjunni Mótun fyrir Heimi Bessason á Húsavík og hér má lesa nánar um bátinn. … Halda áfram að lesa Össur og Svalur
Sigurbjörg BA 155
2475. Sigurbjörg BA 155 ex Sigurbjörg ST 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Sigurbjörg er einn Kínabátann og var upphaflega ST 55 en bar einkennisstafina BA og númerið 155 um tíma. Hún varð síðan aftur ST 55 en báturinn var í eigu Sigurbjargar Jónsdóttur ehf. á Hólmavík.Sigurbjörg var seld til Englands vorið 2004 þar sem hún … Halda áfram að lesa Sigurbjörg BA 155
Vestri BA 63
2463. Vestri BA 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Vestri BA 63 er hér kominn á flot í Hafnarfjarðarhöfn en hann var og er einn Kínabátanna svokölluðu sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga og komu til landsins með flutningaskipi árið 2001. Vestri BA 63 var í eigu samnefnds fyrirtækis á Patreksfirði. Í lok september árið 2005 var … Halda áfram að lesa Vestri BA 63
Skálaberg ÞH 244
1053. Skálaberg ÞH 244 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þarna vorum við búnir að skvera Skálabergið hátt og lágt eitt vorið, sennilega 1981 eða svo. Skálaberg ÞH 244 hét upphaflega Kristjón Jónsson SH 77 frá Ólafsvík en báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1967. Báturinn var keyptur til Húsavíkur í … Halda áfram að lesa Skálaberg ÞH 244









