
Farþegaskipið Quest kom til húsavíkur í kvöld en skipið siglir undir fána Færeyja með heimahöfn í Þórshöfn.
Skipið var smíðað hjá Orskov Yard í Frederikshavn í Danmörku árið 1992. Upphaflega ferja á Grænlandi og bar nafnið Saqqit Ittuk. Árið 2004 fékk skipið nafnið Disko II en hefur heitið Quest frá árinu 2007.
lengd skipsins er 49 metrar og breidd þess 11 metrar. Það mælist 1,268 GT að stærð.
Leit á Google skilaði m.a þessu:
Farþegaskipið M/S Quest er lítið og sérútbúið leiðangursskip sem rúmar 50-54 farþega.
Skipið var smíðað í Danmörku árið 1992 (upphaflega sem ferja á Grænlandi), endurgerð 2004–2005 og uppfært árið 2018. Það siglir einkum í heimskautarannsóknum og ferðum á norðurslóðum, svo sem við Svalbarða.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution