
Jóhanna ÁR 206 lenti fyrir drónalinsunni hjá Jóni Steinari á dögunum þegar báturinn var á leið til hafnar í Njarðvík.
Jóhanna, sem er á sæbjúgnaveiðum, var smíðuð árið 1984 í Strandby Skibsværft A/S skipasmíðastöðinni í Strandby í Danmörku og hét upphaflega Glomfjord.
Báturinn er svo keyptur til Vestmannaeyja á árinu 1986 og fær nafnið Sigurfari VE 138. Nesfiskur hf. í Garði kaupir hann svo frá Eyjum á árinu 1992 og heldur hann nafni og númeri en skráningin verður GK 138.
Núverandi nafn fær báturinn svo árið 2019 og heimahöfnin verður Þorlákshöfn.
Það er Hafnarnes Ver hf. sem á og gerir Jóhönnu út.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution