
Hér kemur netabáturinn Fanney ÞH 130 úr róðri eitt vorið en báturinn var upphaflega í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar, Sigtryggs Kristjánssonar og Ívars Júlíussonar á Húsavík.
Fanney, sem er 22 brl. að stærð, var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri og afhent 1. október árið 1975. Hún var í eigu Ólafs Ármanns Sigurðssonar þegar þessar myndir voru teknar.
Fanney var seld til Ólafsvíkur árið 1997 eftir að hafa verið gerð út frá Húsavík í tuttugu og tvö ár. Þar fékk báturinn nafnið Pétur Jacob SH 37, síðar SH 337.
Árið 2003 fékk báturinn nafnið Skrúður sem hann bar til ársins 2009 en þá fékk hann nafnið Siggi Þórðar GK 197.
Árið 2012 var báturinn keyptur aftur til Húsavíkur þar sem hann fékk sitt gamla nafn, Fanney, og var gerður út til hvalaskoðunar.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution