7395. Kvistur HF 550 ex Kvistur KÓ 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Kvistur HF 550 kemur hér að landi á Suðureyri í vikunni en hann er einn fjölmargra báta sem rær þaðan. Báturinn hét upphaflega Þengill ÞH 34 og átti heimahöfn á Húsavík. Smíðaður hjá Trefjum árið 1991. Árið 1995 fékk báturinn nafnið Gyða … Halda áfram að lesa Kvistur HF 550
Arney HU 36
219. Arney HU 36 ex Þorsteinn SH 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér gefur að líta Arney HU 36 við bryggju á Blönduósi sumarið 2007 en báturinn hét upphaflega Víðir II GK 275 og var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn bar nafnið Víðir II GK 275 í 30 … Halda áfram að lesa Arney HU 36
Ása Bjarney HF 31
7022. Ása Bjarney HF 31 ex Vestmann GK 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Ása Bjarney HF 31 hét upphaflega Kristín Finnbogadóttir BA 95 frá Patreksfirði og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1988. Árið 2001 fékk báturinn nafnið Siggi Breiðfjörð KE 76 með heimahöfn í Keflavík og tveim árum síðar var … Halda áfram að lesa Ása Bjarney HF 31
Sigurbjörg ÞH 62 við Lundey
739. Sigurbjörg ÞH 62. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson. Sigurbjörg ÞH 62 er hér á siglingu innan við Lundey ásamt öðrum bát sem sennilega er Nausti ÞH 91 en myndina tók Gunnar Hallgrímsson. Sigurbjörg var smíðuð á Akureyri árið 1959 fyrir Björgvin Pálsson, Jóhannes Jóhannesson, Hall Jóhannesson og Guðlaug Jóhannesson Flatey á Skjálfanda. Um smíði bátsins má … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÞH 62 við Lundey
Sæli við bryggju á Suðureyri
2736. Sæli BA 333 (Nú ÍS 268) ex Steinunn HF 108. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæli sem liggur hér við bryggju á Suðureyri hét upphaflega Sigrún Hrönn ÞH 36 og var smíðaður hjá Trefjum og kom báturinn í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík þann 23. júní 2007. Báturinn var seldur Melnesi ehf. haustið 2012 og … Halda áfram að lesa Sæli við bryggju á Suðureyri
Torfi Björnsson ÍS 16
1399. Torfi Björnsson ÍS 16 ex Patrekur BA 64. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hér gefur að líta Torfa Björnsson ÍS 16 við bryggju á Flateyri í dag en það er Tjaldtangi ehf. sem gerir hann út. Tjaldtangi keypti bátinn frá Patreksfirði í vor en þar bar hann nafnið Patrekur BA 64 og hafði gert frá … Halda áfram að lesa Torfi Björnsson ÍS 16
Eyrarröst ÍS 201
2625. Eyrarröst ÍS 201 ex Sigurey HF 211. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Eyrarröst ÍS 201 kemur hér að landi á Suðureyri í dag en hann hét upphaflega Sómi HF 100 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 2004. Síðar sama ár fékk báturinn nafnið Hólmarinn SH 114 með heimahöfn í Stykkishólmi. Sumarið 2019 fékk … Halda áfram að lesa Eyrarröst ÍS 201
Afi ÍS 89
1932. Afi ÍS 89 ex NúNú ÍS 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Afi ÍS 89 kemur hér til hafnar á Suðureyi í dag en báturinn, sem er 9,6 brl. að stærð, hét upphaflega Anna Rósa NK 27 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1988. Anna Rósa var með heimahöfn á Neskaupstað til ársins 2002 … Halda áfram að lesa Afi ÍS 89
Drafnar ÍS 12
2379. Drafnar ÍS 12 ex Nanna Ósk ÞH 333. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Drafnar ÍS 12 kemur hér til hafnar á Suðureyri í dag en það er Nannan ehf. sem gerir hann út. Drafnar hét upphaflega Nanna Ósk ÞH 333 og var smíðaður árið 1999 hjá Trefjum í Hafnarfirðir fyrir Stekkjarvík ehf. á Raufarhöfn. … Halda áfram að lesa Drafnar ÍS 12
Gjafar ÍS 72
1929. Gjafar ÍS 72 ex Gjafar NS 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Línubáturinn Gjafar ÍS 72 kemur hér til hafnar á Suðureyri í gær en hann er gerður út af RSG útgerð ehf. Gjafar hét upphaflega Kópur HF 202 og var smíðaður í Noregi árið 1990. Sama ár var báturinn seldur til Ólafsvíkur þar sem … Halda áfram að lesa Gjafar ÍS 72









