Vigri RE 71 í slipp

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Magnús Jónsson. Frystitogarinn Vigri RE 71 hefur verið í slipp í Reykjavík yfir hátíðarnar og tók Magnús Jónsson þessa mynd af honum prýddum jólaljósum. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 í slipp →

Olíutaka vestan við Svalbarða

Olíutaka við Svalbarða. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjufrystitogaranum Reval Viking tók þessa mynd í nótt þegar togarinn var að taka olíu. Olíutakan fór fram vestan við Svalbarða en þangað kom olíuskipið Nordstraum með olíu fyrir togarann. "Nánar tiltekið á 78 gráðum norður og 12 gráðum austur. Beint vestur af Isfjord". Sagði … Halda áfram að lesa Olíutaka vestan við Svalbarða →

Geiri Péturs jólaljósum prýddur

1872. Geiri Péturs ÞH 344 ex Skúmur ÍS 322. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geiri Péturs, sá þriðji í röðinni, liggur hér við bryggju á Húsavík prýddur jólaljósum og aftan við hann glittir í Guðrúnu Björgu ÞH 60 og Kristey ÞH 25. Um Geira Péturs, sem upphaflega hét Skúmur GK 22, má lesa hér. Með því að … Halda áfram að lesa Geiri Péturs jólaljósum prýddur →

Gnúpur seldur til Rússlands

1579. Gnúpur GK 11 ex Guðbjörg ÍS 460. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Frystitogarinn Gnúpur lagði úr höfn í Grindavík um hádegisbil í dag, að öllum líkindum í síðasta sinn en hann hefur verið seldur til Rússlands. Fyrst siglir Gnúpur til Hafnarfjarðar þar sem hann verður tekinn í slipp áður en hann fer utan. Gnúpur sem … Halda áfram að lesa Gnúpur seldur til Rússlands →

Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir

2165. Baldvin Þorsteinsson EA 10 - 2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Þessi mynd var tekin sunnudag einn í byrjun septembermánaðar árið 2000 þegar fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA 10 tók á móti honum og saman sigldu þeir um pollinn en Baldvin … Halda áfram að lesa Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir →